Ari hafði hugmyndir Michael Porter um að ákveða þurfi hvað maður ætlar ekki að gera og verða svo bestur í því sem maður ætlar að gera, til hliðsjónar í skipulagsbreytingunum. Það sé Origo nú búið að gera.
Ari hafði hugmyndir Michael Porter um að ákveða þurfi hvað maður ætlar ekki að gera og verða svo bestur í því sem maður ætlar að gera, til hliðsjónar í skipulagsbreytingunum. Það sé Origo nú búið að gera. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
Upplýsingatæknifyrirtækið Origo hefur selt Applicon, sænskt dótturfélag sitt, til norska tæknifyrirtækisins Pearl Group, stærsta samstarfsaðila þýska hugbúnaðarrisans SAP á Norðurlöndum. Kaupverðið er trúnaðarmál

Upplýsingatæknifyrirtækið Origo hefur selt Applicon, sænskt dótturfélag sitt, til norska tæknifyrirtækisins Pearl Group, stærsta samstarfsaðila þýska hugbúnaðarrisans SAP á Norðurlöndum. Kaupverðið er trúnaðarmál. Applicon hefur síðustu misseri sérhæft sig í SAP-bankalausnum á sænska markaðnum.

Jafnframt verður SAP viðskipta- og bankalausnum Origo á Íslandi komið fyrir í nýju íslensku félagi, Pearl Iceland ehf., sem verður alfarið í eigu Pearl Group. 400 manns vinna hjá Pearl Group. Félagið er með starfsemi í sjö löndum og þjónustar mörg af helstu stórfyrirtækjum Norðurlanda. Breytingarnar taka gildi 1. október.

Finna ekki fyrir breytingum

Ari Daníelsson forstjóri Origo segir í samtali við ViðskiptaMoggann að íslenskir viðskiptavinir sem notað hafa SAP- og bankalausnir Origo muni ekki finna fyrir neinum breytingum. Ingimar Bjarnason, framkvæmdastjóri hugbúnaðarlausna Origo, muni verða framkvæmdastjóri Pearl Iceland og taka sæti í stjórnendateymi norska móðurfélagsins.

60 starfsmenn Origo og Applicon munu starfa hjá Pearl Group eftir breytingarnar, þar af 34 á Íslandi undir merkjum Pearl Iceland.

„Með þessu er að koma til landsins nýr aðili í þjónustu og upplýsingatækni til að sinna mörgum af flóknustu og öflugustu fyrirtækjum landsins. Pearl Group sér líka mikil tækifæri á sínum markaðssvæðum í að selja þær bankalausnir sem Origo hefur þróað í gegnum árin,“ segir Ari.

Lausnirnar sem um ræðir eru að m.a. afgreiðslukerfi gjaldkera, gjaldeyrisviðskipti og netbanki einstaklinga og fyrirtækja.

„Við höfum hingað til verið að þjónusta fjóra íslenska banka og tvo sænska og vaxtartækifærin mjög takmörkuð. Með nýjum eigenda aukast þau til muna.“

Um ástæðu sölunnar segir Ari að hún sé hluti af því umbreytingaferli sem verið hefur í gangi sl. 3-4 ár.

„Við höfum verið að skilgreina hvað felst í kjarnastarfsemi Origo, auka sjálfstæði teyma og skerpa fókus. Þannig viljum við hámarka árangur viðskiptavina og virði hluthafa. Origo á sér langa sögu og er samsett úr mörgum fyrirtækjum sem sumhver geta náð meiri árangri sem sjálfstæðar einingar. Þar má nefna öryggisfyrirtækið Syndis, heilbrigðistæknifyrirtækið Helix og ferðatæknifyrirtækið Godo sem við eigum nú 22% hlut í, eftir að hafa selt ferðalausnir Origo þangað inn. Þá höfum við aðskilið heildsölu- og smásölufyrirtækið Origo lausnir sem sér um sölu á vélbúnaði eins og Lenovo, Sony, Canon og Bose. Það á sér nú sitt eigið sjálfstæða líf,“ útskýrir Ari.

Hann segir að eftir standi kjarnastarfsemin eins og áður sagði.

„Origo verður eftir breytingarnar með fókus á íslensk fyrirtæki og stofnanir og mun þróa eigin vörur á sviði viðskiptalausna. Með því að fara alfarið úr SAP-lausnum, sem einkum henta stórfyrirtækjum, verður nú allur fókus á Microsoft viðskiptalausnir sem henta vel fyrir íslenskan markað.“

Eins og Ari útskýrir verða eigin viðskiptalausnir Origo, s.s. launakerfið Kjarni, gæðakerfið CCQ, Rúna launavakt og tollafgreiðslukerfi, allt hluti af Origo eftir breytingarnar og aukin áhersla lögð á tekjumyndun þessara lausna.

Færð í nýtt rekstrarfélag

Ari segir að í haust verði þessi kjarnastarfsemi færð í nýtt rekstrarfélag undir nafni Origo. Gamla Origo fái nýtt nafn og verði breytt í eignarhaldsfélag sem haldi utan um eignir í upplýsingtæknifyrirtækjum, þ.á m. dótturfyrirtækjunum sem nefnd voru hér á undan.

„Í þessari sjálfstæðisvegferð verður Origo hreinræktað 300 manna þjónustu- og nýsköpunarfyrirtæki fyrir innlendan markað í eigu hins nýja eignarhaldsfélags,“ segir Ari.

Um framtíðina segir Ari, sem tók við sem forstjóri í vor eftir að hafa gegnt stjórnarformennsku í eitt ár þar á undan, að þar muni gervigreind spila stóra rullu.

„Við viljum vera hinn nauðsynlegi milliliður á milli hinna alþjóðlegu risa sem eru að þróa tæknina og fjárfesta í innviðum, og íslenskra fyrirtækja. Við viljum brúa bilið milli grunntækni og raunverulegra viðskiptaþarfa,“ segir Ari að lokum.