Tónlist Richard Stellar vinnur nú að grein um íslenskt tónlistarlíf. Hann lýsir því sem algjörlega mögnuðu.
Tónlist Richard Stellar vinnur nú að grein um íslenskt tónlistarlíf. Hann lýsir því sem algjörlega mögnuðu. — Morgunblaðið/Eyþór
Bandaríski verðlaunablaðamaðurinn Richard Stellar er kominn hingað til lands í pílagrímsferð. Ástæðan fyrir heimsókninni er ekki aðeins til að skoða landið heldur fann hann lækningu við krabbameini sínu í gegnum tónlist Þorvaldar Bjarna…

Birta Hannesdóttir

birta@mbl.is

Bandaríski verðlaunablaðamaðurinn Richard Stellar er kominn hingað til lands í pílagrímsferð. Ástæðan fyrir heimsókninni er ekki aðeins til að skoða landið heldur fann hann lækningu við krabbameini sínu í gegnum tónlist Þorvaldar Bjarna Þorvaldssonar, tónlistarmanns og tónlistarstjóra Menningarfélags Akureyrar. Þessu eru læknar hans sammála.

Blaðamaður hitti Stellar og Þorvald Bjarna þar sem rætt var um tónlistina og hvernig hún hjálpaði Stellar í baráttunni við krabbameinið en hann er í dag krabbameinslaus.

Stellar greindist með gallrásarkrabbamein fyrir nokkrum árum og var honum tjáð að hann ætti ekki miklar líkur á að ná sér eða um 5% líkur. Honum var ráðlagt af læknum sínum að leita í tónlist til að hugleiða.

Hann var búinn með 12 vikur af sex mánaða strangri krabbameinsmeðferð þegar hann rakst á lagið Awaken með Jon Anderson og Todmobile sem var flutt í Hörpu árið 2013. Stellar lýsir því að þegar hann hlustaði á lagið hafi hann fengið uppljómun.

„Þegar ég hlustaði á lagið þá táraðist ég. Ég hlustaði á það aftur og ég fann eitthvað innra með mér […]. Ég fann að þetta lag hafði eitthvert afl sem myndi gera mér gott,“ segir hann.

Skrifar um íslenskt tónlistarlíf

Stellar hefur skrifast á við bæði Þorvald og Anderson síðan hann uppgötvaði lagið og segja þeir báðir að þessi tiltekni flutningur hafi verið ótrúlegur. Þeir segjast sjálfir hafa fengið einhvers konar uppljómun við flutninginn.

Stellar vinnur nú að því að skrifa grein fyrir bandaríska vefinn The Wrap um íslenskt tónlistarlíf, sem hann lýsir sem algjörlega mögnuðu. Spurður hvað það sé við íslenskt tónlistarlíf sem sé svona magnað segir hann erfitt að útskýra það. „Þetta eru óþekkt gæði í tónlist. […] Það er eitthvað sem ég get ekki útskýrt sem er græðandi við þessa tónlist,“ segir hann.

Þorvaldur og Stellar hafa verið í miklum samskiptum síðan Stellar uppgötvaði tónlist Þorvaldar. Þeir eiga flest sín samskipti í gegnum samskiptaforritið Zoom en þeir hittust nú í fyrsta skipti á Íslandi. Stellar lýsir Þorvaldi sem bjargvætti sínum og vini. „Hann er bjargvættur minn, leiðtogi og vinur. Ég elska þennan gaur,“ segir hann.

Aðspurður segir Þorvaldur Bjarni að það hafi verið erfitt að trúa því að tónlist hans hafi hjálpað einhverjum með jafn illkvittinn sjúkdóm og krabbamein. „Ég trúði þessu ekki til að byrja með en svo fór ég að kynnast honum og þá fór ég að trúa honum. Þetta er auðvitað góð tilfinning,“ segir hann.

Höf.: Birta Hannesdóttir