Pétur Blöndal
p.blondal@gmail.com
Það bar til tíðinda að leitað var í bát á Höfn, en ætluð fíkniefni voru að líkindum sandur, samkvæmt fréttum. Jón Jens Kristjánsson kastaði fram:
Er farið smáa flaut við land
og flutti með í pokum sand
var stefnt þar stórum hóp
laganna varða sem leita tók
og lýsti í sérhvert horn og krók
og gáði í föls og gróp
svo þarna umbylt öllu var
þá enginn sást við rannsókn spar
og hífðu sekk á handvagn þar
er hugðu vera dóp.
Jóhannes Geir Einarsson bætti við:
Lögreglunnar heljar hóp
helst þótti aukast vandinn
Reyndar eftir að rótsterkt dóp
rann bara út í sandinn.
¶Nú er Trump í frjálsu falli¶frekar litla á hann von,¶illum nöfnum eins þó kalli¶andstæðinginn lon og don.¶Hannes Hafstein velti á sínum tíma fyrir sér muninum á þrám karla og kvenna:
Karlmannsþrá er, vitum vér,
vefja svanna í fangi.
Kvenmannsþráin einkum er
að hann til þess langi.
Theódór Daníelsson kennari á Akureyri hafði eitthvert sinn á orði að hann væri náttúrulaus orðinn. Þura í Garði kastaði þá fram:
Þú hefur Teddi mikið misst
mannlegu náttúruna.
Þína fyrr ég þekkti lyst
þá var allt í funa.
Theódór svaraði:
Ef að ég var ástagjarn
það alla daga sýti
að ég ekki bjó til barn
í botninum á Víti.
Þráin var einnig Önnu Jónsdóttur frá Hveragerði hugstæð er hún sló á létta strengi:
Flestra gæða fer á mis,
finnst mér brostinn strengur
því gamlir menn til gjálífis
ginnast ekki lengur.
Jón Karlsson frá Gýgjarkoti svaraði:
Enn þá mætti ástarslys
ætla gamla Jóni
því gamlir menn til gjálífis
ginnast enn á Fróni.
Ef lesendur eru með ábendingar eða luma á vísum er allt slíkt vel þegið.