Orri Hauksson lætur af störfum sem forstjóri um mánðamót.
Orri Hauksson lætur af störfum sem forstjóri um mánðamót. — Morgunblaðið/Golli
Hagnaður Símans á öðrum ársfjórðungi þessa árs nam um 244 m.kr., samanborið við tæpar 180 m.kr. á sama tíma í fyrra. Hagnaður Símans á fyrri helmingi ársins nemur því um 415 m.kr. og hefur dregist saman um 10 m.kr

Hagnaður Símans á öðrum ársfjórðungi þessa árs nam um 244 m.kr., samanborið við tæpar 180 m.kr. á sama tíma í fyrra. Hagnaður Símans á fyrri helmingi ársins nemur því um 415 m.kr. og hefur dregist saman um 10 m.kr. á milli ára.

Tekjur félagsins á öðrum ársfjórðungi námu um 6,9 mö.kr. og jukust um rúm 9% á milli ára. Þá hafa tekjurnar aukist um 870 m.kr. sé horft til fyrstu sex mánaða ársins.

Í ársfjórðungsuppgjöri Símans, sem birt var í gær, kemur fram að tekjur af kjarnaþjónustu félagsins (þ.e. farsímaþjónustu, gagnaflutningi og sjónvarpsþjónustu) hafi aukist um rúmlega 5% á milli ára. Eigið fé Símans var rúmir 18 ma.kr. í lok júní og eiginfjárhlutfall 46,3%.

Athygli vekur að staða útlána hjá Símanum Pay var um 3,2 ma.kr. í lok júní og hefur aukist um rúmlega 800 m.kr. á milli ára. Þá liggur fyrir samkomulag um að Síminn Pay taki yfir greiðsludreifingar og kortalán fyrir um 1,8 ma.kr. af Rapyd.

Orri Hauksson mun láta af störfum sem forstjóri nú um mánaðamótin eftir að hafa gegnt því starfi í 11 ár. Við starfi hans tekur María Björk Einarsdóttir, sem hefur verið fjármálastjóri Eimskips sl. þrjú ár.