Bókabúð Sigþrúður Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri Forlagsins.
Bókabúð Sigþrúður Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri Forlagsins. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bókaútgáfan Forlagið og fjórir rithöfundar hafa tekið höndum saman um að bjóða upp á fyrstu kaflana úr bókum sínum í tungumálaforritinu LingQ. Þessu frumkvæði er ætlað að auðvelda útlendingum að læra íslensku og um leið kynna bækur rithöfundanna

Bókaútgáfan Forlagið og fjórir rithöfundar hafa tekið höndum saman um að bjóða upp á fyrstu kaflana úr bókum sínum í tungumálaforritinu LingQ. Þessu frumkvæði er ætlað að auðvelda útlendingum að læra íslensku og um leið kynna bækur rithöfundanna. Nú er hægt að lesa fyrstu 2-3 kaflana úr bókum eins og Dauða skógar eftir Jónas Reyni Gunnarsson, Að telja upp í milljón eftir Önnu Hafþórsdóttur, Kalman-bókunum eftir Joachim B. Schmidt, ásamt fjölmörgum barnabókum Gunnars Helgasonar, þar á meðal Sigga sítrónu, Palla Playstation, Bannað að ljúga og fleirum. Þetta kemur fram í tilkynningu.

LingQ er tungumálaforrit sem aðstoðar notendur við að læra tungumál með lestri og hlustun. Forritið býður upp á sjálfvirkar þýðingar á orðum og setningum, sem gerir lesendum kleift að skilja textann betur og smám saman auka orðaforða sinn með endurteknum lestri. Árið 2022 innleiddi Rökkvi Vésteinsson íslensku í LingQ, og árið eftir gerði hann samning við eigendur forritsins um að bjóða upp á ókeypis íslenskukennslu í forritinu, að því er fram kemur í tilkynningunni. Hann leitaði síðan til Sigþrúðar Gunnarsdóttur framkvæmdastjóra Forlagsins og rithöfundanna sem áður eru nefndir til að fá leyfi til að birta fyrstu 2-3 kaflana úr bókum þeirra. „Ef við ætlum að halda íslenskunni lifandi, sem er ekki lítil áskorun í dag miðað við þá þróun sem er að verða, þarf fólk að hafa aðgengi að góðu íslensku efni til að geta hlustað á og lesið og helst með einhverjum þýðingum. Samningurinn við Forlagið er auðvitað skref í því átaki sem ég hef verið í. Ég vona að það hvetji síðan fleiri höfunda til að hafa samband við mig og gera það sama,“ er haft eftir Rökkva í tilkynningunni.