Óðinn, einn af borum Jarðborana, að störfum á Nesjavöllum.
Óðinn, einn af borum Jarðborana, að störfum á Nesjavöllum. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
Norska borfyrirtækið Archer hefur aukið við eignarhlut sinn í íslenska borfyrirtækinu Jarðborunum. Fyrirtækið kaupir 10% hlut af meðeiganda sínum Kaldbaki, fjárfestingarfélagi útgerðarfyrirtækisins Samherja, á 2,5 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði ríflega 350 milljóna íslenskra króna

Norska borfyrirtækið Archer hefur aukið við eignarhlut sinn í íslenska borfyrirtækinu Jarðborunum. Fyrirtækið kaupir 10% hlut af meðeiganda sínum Kaldbaki, fjárfestingarfélagi útgerðarfyrirtækisins Samherja, á 2,5 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði ríflega 350 milljóna íslenskra króna.

Eftir viðskiptin á Archer 60% hlut í Jarðborunum. Kaupverðið eru að fullu greitt með hlutum í Archer.

Í tilkynningu á vef Archer segir að Jarðboranir séu leiðandi á alþjóðavísu í jarðborunum á háhitasvæðum og hefur fyrirtækið meðal annars sinnt djúpborunum vegna rafmagnsframleiðslu og fyrir kolefnisförgun.

Um 200 manns vinna hjá Jarðborunum og er meginhluti starfseminnar á Íslandi og á Filippseyjum.

Forstjóri Archer, Dag Skindlo, segir í tilkynningunni að jarðhitaorka sé mikilvægur hluti af orkukostum framtíðar og mikil samlegð sé með grunnþjónustu Archer.

„Við höfum mikinn metnað í að auka þátttöku okkar í hinum vaxandi háhitamarkaði og fylgjumst grannt með þeim tækifærum sem bjóðast á alþjóðavísu.“

Jafnframt segir hann að sérfræðingar telji að markaðurinn fyrir háhitaborun muni vaxa umtalsvert á næstu áratugum. Jarðboranir séu í kjörstöðu til að auka við markaðshlutdeild sína.

„Við munum halda áfram að styðja við vöxt félagsins og þróun fyrirtækisins. Við fögnum því að fá Kaldbak með okkur sem nýjan langtímafjárfesti í Archer.“

Í tilkynningunni segir að áætlað sé að fjárfestingin muni auka tekjur Archer um 4% árið 2024 og EBITDA-framlegð um 6-7%.