Fram vann afskaplega öruggan sigur á Stjörnunni, 33:22, í fyrstu umferð úrvalsdeildar kvenna í handknattleik í Úlfarsárdal í gærkvöld. Staðan í hálfleik var 19:13 og í síðari hálfleik var Fram með öll völd á vellinum
Fram vann afskaplega öruggan sigur á Stjörnunni, 33:22, í fyrstu umferð úrvalsdeildar kvenna í handknattleik í Úlfarsárdal í gærkvöld. Staðan í hálfleik var 19:13 og í síðari hálfleik var Fram með öll völd á vellinum. Markahæstar hjá Fram voru Alfa Brá Hagalín, Þórey Rósa Stefánsdóttir og Sóldís Rós Ragnarsdóttir með sjö mörk hver. Hjá Stjörnunni var Eva Björk Davíðsdóttir með sex mörk en markverðir liðsins vörðu báðir mjög vel, alls 24 skot.