Í Laugardal
Víðir Sigurðsson
Bjarni Helgason
Jóhann Ingi Hafþórsson
Ísland fékk sannkallaða óskabyrjun í Þjóðadeild karla í fótbolta í gærkvöld þegar liðið lagði Svartfjallaland verðskuldað í fyrsta leik keppninnar á Laugardalsvellinum, 2:0.
Orri Steinn Óskarsson kom Íslandi yfir á 39. mínútu með glæsilegu skallamarki eftir hornspyrnu Jóhanns Bergs Guðmundssonar frá hægri og staðan var 1:0 í hálfleik.
Dæmd var vítaspyrna á Svartfellinga í byrjun síðari hálfleiks, fyrir meinta hendi, en franski dómarinn dró þá ákvörðun sína til baka eftir að hafa skoðað atvikið á sjónvarpsskjá.
En íslenska liðið var með undirtökin í leiknum og skoraði keimlíkt mark á 58. mínútu. Nú var það hornspyrna frá vinstri sem Gylfi Þór Sigurðsson tók og Jón Dagur Þorsteinsson sneiddi boltann skemmtilega í netið með skalla af markteignum vinstra megin, 2:0.
Hákon Rafn Valdimarsson varði af öryggi þau skot sem komu á íslenska markið en Stevan Jovetic lífgaði upp á sóknarleik Svartfellinga seinni hluta leiksins.
Willum Þór Willumsson var síðan tvívegis nálægt því að bæta við þriðja marki Íslands á lokakaflanum og í annað skiptið varði Milan Mijatovic frá honum úr dauðafæri.