Lögregla Alls hafa 196 uppljóstrarar starfað fyrir lögreglu frá 2011.
Lögregla Alls hafa 196 uppljóstrarar starfað fyrir lögreglu frá 2011. — Morgunblaðið/Eggert
Alls hafa 196 uppljóstrarar starfað fyrir embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu frá árinu 2011, þar af níu á þessu ári að því er fram kemur í svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn á Alþingi. Dagbjört Hákonardóttir varaþingmaður…

Alls hafa 196 uppljóstrarar starfað fyrir embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu frá árinu 2011, þar af níu á þessu ári að því er fram kemur í svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn á Alþingi.

Dagbjört Hákonardóttir varaþingmaður Samfylkingarinnar spurði Guðrúnu Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra um fjölda uppljóstrara hjá lögregluembættum landsins frá árinu 2011. Fram kemur í svarinu, að uppljóstrarar hafi aðeins starfað fyrir lögregluna á höfuðborgarsvæðinu. Um er að ræða 152 karla og 44 konur.

Í viðkvæmri stöðu

Í svarinu segir að uppljóstrari sé í mjög viðkvæmri stöðu og beri lögreglu að viðhafa leynd um hver hann er. Ekki sé haldin skrá um það hvort grunaðir einstaklingar eða sakborningar í málum hafi fengið þá stöðu vegna upplýsinga sem stafa frá uppljóstrurum enda geti þær upplýsingar annaðhvort leitt til þess að rannsókn verði hafin eða nýst við rannsókn sem þegar er hafin.

Einnig er tekið fram að upplýsingar frá uppljóstrurum geti annaðhvort borist lögreglu að frumkvæði uppljóstrara eða að lögregla leiti eftir upplýsingum frá tilteknum uppljóstrurum sem ætla megi að búi yfir upplýsingum.

Dagbjört spurði einnig m.a. hversu margir sakborningar eða grunaðir hafi verið upplýstir um slíka aðgerð eftir að henni lauk. Í svarinu er vísað í ákvæði reglugerðar um að tryggja skuli nafnleynd og trúnað við uppljóstrara á öllum stigum rannsóknar og eftir að henni lýkur. Auðvelt geti verið fyrir grunaðan einstakling eða sakborning í máli að átta sig á hvaðan upplýsingar um hann hafi borist lögreglu, verði hann upplýstur um að þær stafi frá uppljóstrara.