Rannsókn á manndrápi í sumarhúsi í Kiðjabergi í uppsveitum Árnessýslu þann 20. apríl er á lokastigum að sögn Sveins Kristjáns Rúnarssonar, yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á Suðurlandi. Í undirbúningi sé að koma málinu til héraðssaksóknara
Rannsókn á manndrápi í sumarhúsi í Kiðjabergi í uppsveitum Árnessýslu þann 20. apríl er á lokastigum að sögn Sveins Kristjáns Rúnarssonar, yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á Suðurlandi.
Í undirbúningi sé að koma málinu til héraðssaksóknara. Litáískur karlmaður er grunaður um manndráp í sumarhúsinu en samlandi hans var úrskurðaður látinn á vettvangi.
Upphaflega voru fjórir menn handteknir þann 20. apríl en tveimur var síðar sleppt. Hinir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald, öðrum þeirra var síðar sleppt en sá grunaði í málinu var í afplánun út af öðru máli.