Á morgun er síðasta tækifærið til að sjá höfuðborgina og nærsveitir úr parísarhjóli á Miðbakkanum í Reykjavík áður en haustið tekur við. Taylors Funfairs, sem rekur parísarhjólið, ætlar af þessu tilefni að gefa helmingsafslátt af miðaverðinu í dag og á morgun

Kristján Jónsson

kris@mbl.is

Á morgun er síðasta tækifærið til að sjá höfuðborgina og nærsveitir úr parísarhjóli á Miðbakkanum í Reykjavík áður en haustið tekur við. Taylors Funfairs, sem rekur parísarhjólið, ætlar af þessu tilefni að gefa helmingsafslátt af miðaverðinu í dag og á morgun.

Miðaverðið í sumar var 3.000 krónur og verður því 1.500 krónur um helgina. Kane Taylor staðfesti þetta í samtali við blaðið í gær en hann er nokkuð sáttur við aðsóknina í sumar. „Við viljum þakka fyrir okkur og gefa fleirum tækifæri til að fara í hjólið og njóta útsýnisins,“ segir Kane Taylor hjá Taylors Funfairs sem sáu um uppsetningu og rekstur parísarhjólsins.

„Auðvitað hefur fólk oft farið þarna fram hjá í sumar og séð fáa eða enga í hjólinu, en það þýðir þó ekki að nýtingin hafi verið sérlega slæm. Hjólið tekur 140 í einu. Ef það væri alltaf fullt í heilan dag þá væri það drjúgur hluti íslensku þjóðarinnar. En það er aldrei full nýting á þessum hjólum. Segja má að þetta sumar hafi verið tilraun og við erum ánægð með viðtökurnar,“ segir Kane Taylor hjá Taylors Funfairs og bætir því við að fyrirtækið eigi eftir að taka saman selda miða og muni gera það þegar tímabilinu er lokið.

Gæti verið í boði að ári

Veðrið á höfuðborgarsvæðinu í sumar hjálpaði líklega ekki til en þó féll ekki niður dagur í starfseminni. Taylor segir að tæknibúnaðurinn sé öflugur og auðvelt sé að átta sig á hversu mikil áhrif vindurinn geti haft ef einhver. Öryggismálin séu í góðu lagi hvað það varðar. Í tveimur tilfellum í sumar hafi verið opið skemur en ella vegna veðurs.

Taylor segist opinn fyrir þeirri hugmynd að setja hjólið aftur upp næsta sumar en of snemmt sé að fullyrða nokkuð um slíkt. Áður en ákvörðun yrði tekin þyrfti að ræða við Reykjavíkurborg um leigu, staðsetningu og aðstöðuna almennt.

Höf.: Kristján Jónsson