Breiðablk og Valur eru bæði úr leik í Meistaradeild kvenna í fótbolta eftir að hafa tapað úrslitaleikjum í fyrstu umferð keppninnar á laugardaginn.
Sporting Lissabon frá Portúgal vann Breiðablik í hörkuleik á Kópavogsvelli, 2:0, en Valskonur áttu aldrei möguleika gegn Hollandsmeisturum Twente í Enschede í Hollandi og töpuðu 5:0.
Vendipunkturinn í leik Breiðabliks og Sporting var í lok fyrri hálfleiks þegar markvörður Portúgalanna, Hannah Seabert, fékk aðeins gult spjald fyrir að brjóta á Samönthu Smith utan vítateigs. Hún og lið hennar sluppu með skrekkinn. Telma Encarnacao skoraði bæði mörk Sporting, á 4. og 74. mínútu.
Erfitt í Hollandi
Valur átti alltaf á brattann að sækja gegn Twente sem gerði út um leikinn með því að skora tvívegis á lokamínútum fyrri hálfleiks og komast þar með í 3:0. Valsliðið hefði þó hæglega getað skorað fleiri en eitt mark í opnum leik.
Amanda Andradóttir kom inn á hjá Twente gegn sínum gömlu félögum í Val á 73. mínútu, í staðinn fyrir Charlotte Hulst sem hafði skorað tvö mörk fyrir Hollendingana.
Íslendingaliðin Fiorentina (Alexandra Jóhannsdóttir) og Vålerenga (Sædís Rún Heiðarsdóttir) komust áfram í 2. umferð en dregið verður til hennar í dag. Þar mæta Sveindís Jane Jónsdóttir og samherjar í Wolfsburg til leiks en Bayern München, lið Glódísar Perlu Viggósdóttur, situr hjá þar til í riðlakeppninni.