Húsavíkurfjall Útsýnið sem blasir við Guðmundi Eiríkssyni, Umma, sem hefur endurhlaðið Hoffmannsvörðuna.
Húsavíkurfjall Útsýnið sem blasir við Guðmundi Eiríkssyni, Umma, sem hefur endurhlaðið Hoffmannsvörðuna. — Ljósmyndir/Ummi
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
„Sjálfsagt þykir einhverjum þetta bölvuð vitleysa en ég er alveg friðlaus ef ég fer ekki af stað,“ segir hinn 78 ára gamli fyrrverandi sjómaður á Húsavík, Guðmundur Hersteinn Eiríksson, sem undanfarin níu ár hefur gengið 100-150 sinnum á ári upp Húsavíkurfjallið, sem er 417 metra hátt

Björn Jóhann Björnsson

bjb@mbl.is

„Sjálfsagt þykir einhverjum þetta bölvuð vitleysa en ég er alveg friðlaus ef ég fer ekki af stað,“ segir hinn 78 ára gamli fyrrverandi sjómaður á Húsavík, Guðmundur Hersteinn Eiríksson, sem undanfarin níu ár hefur gengið 100-150 sinnum á ári upp Húsavíkurfjallið, sem er 417 metra hátt. Alls eru þetta orðnar um 1.000 ferðir.

Guðmundur, eða Ummi eins og hann er gjarnan kallaður, er einnig duglegur að hjóla og fer í sjóböðin á Húsavík að lokinni hverri fjallgöngu. Hann hefur jafnframt verið duglegur að ganga á önnur fjöll, m.a. á Herðubreið á síðasta ári.

Aldrei verið sporlatur

Ummi starfaði lengstum sem sjómaður og síðustu starfsárin við þrif í frystihúsinu á Húsavík. Þegar hann varð 70 ára, og hættur að vinna, setti hann sér markmið á nýársdegi 2016 að fara 70 ferðir upp á bæjarfjallið. Hann segist fram að því ekki hafa stundað hreyfingu með markvissum hætti. „Hef þó aldrei verið sporlatur,“ segir Ummi og hlær smitandi hlátri.

Nýtt markmið um fjallgöngur kom reyndar ekki til af góðu. Árið 2015 fékk hann blóðtappa í lungun og eftir það ákvað hann að koma sér í gang aftur. Horfði til fjalls og hugsaði með sér að það væri áskorun við hæfi.

Ferðirnar fyrsta árið urðu reyndar ekki 70 heldur 100 og flestar urðu þær um 150 árið 2022. Þá ákvað Ummi að ganga sem næmi því að þramma hringveginn, um 1.320 km.

„Mottóið hjá mér er að fara að heiman og heim, aldrei að svindla. Þótt ég fari á hjóli af stað, þá geng ég alltaf upp fjallið. Margir hafa boðið mér far en ég neita alltaf,“ segir Ummi en hægt er aka alla leið upp á Húsavíkurfjall.

Hann segist fara af stað í hvaða veðri sem er, árið um kring. „Ef með þarf þá tek ég snjóþrúgur með og broddstafi. Læt ekkert stöðva mig nema aftakaveður. Yfirleitt er ég einn á ferð, finnst þægilegt að vera engum háður þótt auðvitað sé gaman að hitta fólk,“ segir Ummi sem velur erfiðustu gönguleiðina beint upp fjallið.

Ummi hefur í tvígang greinst með covid-19 en lét það ekki stöðva sig. „Ég fékk þetta í seinna skiptið bara um daginn en ákvað fljótlega að fara á fjallið, til að vita hvort ég væri orðinn laus við pestina. Gangan var erfiðari en venjulega en mér varð ekki meint af.“

Skálað með Hoffmannsdropum

Í ferðum sínum á fjallið hefur Ummi einnig haft verkefni; að viðhalda Hoffmannsvörðunni svofnefndu sem sægarpurinn Pétur Hoffmann Salómonsson hlóð árið 1935. Í tvígang lagfærði hann vörðuna, sumurin 2017 og 2021, en í sumar hrundi hún í miklum norðvestanhvelli. Tók Ummi sig þá til og endurhlóð vörðuna nánast frá grunni.

Hún er sérstök að því leyti að stærri steinar eru efst og þeir minni neðst. Minnist Ummi á bók Stefáns Jónssonar um Pétur Hoffmann, þar sem fram kemur m.a. að Pétur hafi biðlað til Húsvíkinga að halda vörðunni við að sér gengnum.

„Við Pétur erum sálufélagar,“ segir Ummi en að loknu góðu verki í sumar var skálað í koníaksstaupi á Húsavíkurfjalli. „Þetta voru góðir Hoffmannsdropar,“ segir Ummi að endingu, fjallhress.

Höf.: Björn Jóhann Björnsson