Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Lögreglan á Austurlandi hefur fengið í hendur bráðabirgðaniðurstöður úr krufningu á hjónum á áttræðisaldri sem fundust látin í heimahúsi í Neskaupstað 22. ágúst.
Gæsluvarðhald yfir manninum sem grunaður er um að hafa banað hjónunum var sl. föstudag framlengt til 4. október en hann var handtekinn í miðbæ Reykjavíkur og úrskurðaður í gæsluvarðhald og einangrun í fangelsinu á Hólmsheiði. Fallist hefur verið á geðrannsókn á honum.
„Myndin er alltaf að verða skýrari og þær bráðabirgðaniðurstöður sem við höfum fengið úr krufningunni eru eitt púslið í stórri mynd,“ segir Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn á Austurlandi, í samtali við blaðamann. Kristján Ólafur segir að vettvangsrannsókn sé lokið en rannsókn málsins sé þó enn í fullum gangi. Er nú beðið eftir niðurstöðum úr gögnum, s.s. DNA-sýni, auk þess sem öflun gagna stendur enn yfir.
Þá segir hann að vinna sé enn í gangi hvað varðar rannsókn á hvort eða hvaða vopni hafi verið beitt.
Séra Benjamín Hrafn Böðvarsson hefur í samtali við Morgunblaðið sagt samfélagið vera í sorg og að mikilvægt sé að aðstandendur og íbúar haldi utan um hver annan. Minningarstund hefur þegar verið haldin um hjónin.