Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur ákveðið að vísa máli gegn Íslandi til EFTA-dómstólsins þar sem Ísland hefur ekki innleitt fjórar reglugerðir á sviði fjármálaþjónustu í landsrétt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ESA, en þar segir að Íslandi hafi borið að innleiða þessar fjórar reglugerðir í landslög fyrir mars 2023.
„Hlutverk ESA er að tryggja að samkeppnisskilyrði í fjármálaþjónustu séu sambærileg á öllu EES-svæðinu. ESA sendi formlegt áminningarbréf hvað varðar reglugerðirnar til Íslands í maí 2023 og rökstutt álit í febrúar 2024, sem var fylgt eftir með óformlegum samskiptum. ESA hefur ekki fengið neinar upplýsingar sem gefa til kynna að reglugerðirnar hafi verið leiddar í landsrétt,“ segir í tilkynningu.
EES-gerðirnar sem um ræðir ná yfir mismunandi þætti fjármálaþjónustu, þar á meðal áhættustýringarferli, skráningu viðskiptaskrár, stöðustofnunarskyldur og afleiður.