Ísjaki Til jakans sást frá Litlu-Ávík.
— Ljósmynd/Jón Guðbjörn Guðjónsson
Stakur borgarísjaki sást frá Litlu-Ávík á Ströndum í gær, um þrjá kílómetra út af Reykjarnesströnd, á milli Reykjarneshyrnu og Gjögurflugvallar á Víganesi. Jakann virðist reka hægt inn Húnaflóa en óvíst er hvort jakinn rati endanlega á land.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.