Laugardalslaug verður lokuð næstu tvær vikur og segir forstöðumaður laugarinnar Drífa Magnúsdóttir að verið sé að halda áfram þeirri vinnu sem hófst í fyrra þegar laugin var lokuð í rúmar þrjár vikur og að nú sé vitað betur hverju gengið er að.
Laugin verður lokuð til og með 24. september, en meðal annars á að vinna að endurnýjun og viðhaldi á kýraugum sem hófst í fyrra.
Farið var í viðamiklar framkvæmdir í fyrra. Upphafleg tímaáætlun þá gerði ráð fyrir tveggja vikna lokun, en vegna ófyrirséðra viðgerða sem ljóst var að þurfti einnig að ráðast í var tímaramminn framlengdur í rúmlega þrjár vikur. Þá þurfti einnig að loka lauginni í stuttan tíma í vor.