Sjónvarpsstöðin HBO leitar nú að nýjum aðalleikurum fyrir komandi Harry Potter-seríu og opnaði fyrir umsóknir fyrr í vikunni. Áhugasamir þurfa að uppfylla ákveðin skilyrði til að geta fengið hlutverk Harrys, Rons eða Hermione, en börnin þurfa að vera á aldrinum níu til ellefu ára í apríl 2025 og búa í Bretlandi eða á Írlandi. Þeir sem vilja sækja um verða að senda tvö myndbönd af sér flytja annars vegar ljóð eða sögu og hins vegar kynningu. Enginn útgáfudagur hefur enn verið tilkynntur fyrir seríuna, en líklegt þykir að hún verði tekin upp í Bretlandi 2025-2026.