Annir Ragnar Jónasson rithöfundur er með mörg járn í eldinum.
Annir Ragnar Jónasson rithöfundur er með mörg járn í eldinum. — Morgunblaðið/Eggert
Útgáfa á nýrri spennusögu Ragnars Jónassonar hefur vakið athygli í bókmenntaheiminum vestanhafs ef marka má umfjöllun Los Angeles Times. Blaðið tók út þrjátíu bækur sem gagnrýnendurnir eru spenntir fyrir þetta haustið og er Hvítidauði eftir Ragnar…

Höskuldur Daði Magnússon

hdm@mbl.is

Útgáfa á nýrri spennusögu Ragnars Jónassonar hefur vakið athygli í bókmenntaheiminum vestanhafs ef marka má umfjöllun Los Angeles Times. Blaðið tók út þrjátíu bækur sem gagnrýnendurnir eru spenntir fyrir þetta haustið og er Hvítidauði eftir Ragnar ein af þeim skáldsögum sem mest er beðið eftir. „Reynsla Ragnars Jónassonar sem leiðandi glæpasagnahöfundar Íslands og þýðanda Agöthu Christie gæðir þessa sjálfstæðu ráðgátu lífi en hún tengist á heillandi hátt metsöluþríleik hans um Huldu Hermannsdóttur,“ segir í umfjöllun blaðsins um Hvítadauða sem nefnist Death at the Sanatorium upp á ensku. Ragnar er í góðum hópi höfunda í umfjöllun blaðsins því þar er að finna nýjar bækur eftir Sally Rooney, Michael Connelly og Önnu Moschovakis svo fáeinir séu nefndir.

Nýir þættir frumsýndir í dag

Skammt er stórra högga á milli hjá Ragnari því í dag verða þættir byggðir á bók hans Dimmu frumsýndir hjá Sjónvarpi Símans. Lasse Hallström leikstýrir en Lena Olin fer með hlutverk Huldu Hermannsdóttur. Á dögunum kom Hvítidauði út í Bretlandi og hefur þar hlotið afar lofsamlega dóma. Daily Mail sagði að að Ragnar væri einhver besti glæpasagnahöfundur heims nú um stundir og gagnrýnandi The Times sagði að Hvítidauði væri hugvitsamlega skrifuð og taugatrekkjandi.

Höf.: Höskuldur Daði Magnússon