Notagildi Jakkinn verður líklega vinur þinn til margra ára.
Notagildi Jakkinn verður líklega vinur þinn til margra ára.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Nú er hinn fullkomni árstími fyrir uppáhaldsjakka landsmanna; vaxaða vinnujakkann sem nýtist í hin ýmsu verkefni og tilefni. Hér á landi hefur hann verið vinsælastur frá merkjum eins og Barbour og þá sérstaklega á meðal karlmanna

Edda Gunnlaugsdóttir

eddag@mbl.is

Nú er hinn fullkomni árstími fyrir uppáhaldsjakka landsmanna; vaxaða vinnujakkann sem nýtist í hin ýmsu verkefni og tilefni. Hér á landi hefur hann verið vinsælastur frá merkjum eins og Barbour og þá sérstaklega á meðal karlmanna. Það má meira að segja ganga svo langt að segja jakkann eina af þeim flíkum sem allir ættu að eiga.

Uppruna Barbour-jakkans má rekja allt til ársins 1894, þegar Englendingurinn John Barbour opnaði verslun sem seldi praktískan og vatnsfráhrindandi fatnað sem átti að vernda fyrir verstu veðrum. Það var hins vegar upp úr 1980 sem vaxjakkarnir frá Barbour sem við þekkjum í dag voru hannaðir. Síðan þá hafa þeir verið eftirlæti margra.

Íslendingar eiga það auðvitað sameiginlegt með Bretum að veðrið er yfirleitt ekki upp á marga fiska. Þess vegna hefur þessi jakki verið svo vinsæll hjá öllum kynjum og vinsældirnar eru skiljanlegar. Hann er mjög praktískur, slitsterkur, þægilegur þegar rignir og lítur vel út. Má ganga svo langt að segja að þetta sé eitt af því sem fer aldrei úr tísku?

„Litli bróðir“ vaxjakkans hefur þá verið áberandi undanfarið en þá útgáfu skortir vaxið. Jakkinn er úr þykku bómullarefni, yfirleitt með kraga og nokkrum vösum. Þann jakka má finna í verslunum víða og er verðbilið breitt. Flíkin er nú orðin hátískuvara þar sem tískuhús á borð við Prada, Loewe og Isabel Marant tóku þátt í dýrkuninni. Ítalska tískuhúsið Prada er með flotta útgáfu af jakkanum í brúnum lit með flauels­kraga. Loewe kom með styttri dökkgræna útgáfu með koníaksbrúnum flauels­kraga og útgáfa Isabel Marant var síðan með mörgum vösum.

Til að fullkomna útlitið þarf svo helst að setjast upp í Land Rover frá árinu 1989. Þá kemur hinn sanni innri Breti í ljós.

Höf.: Edda Gunnlaugsdóttir