Skógarfura Johan Holst mælir þvermálið á tré ársins 2024.
Skógarfura Johan Holst mælir þvermálið á tré ársins 2024. — Ljósmynd/Rúnar Birgir Gíslason
Skógarfura (Pinus sylvestris) í Varmahlíð í Skagafirði varð fyrir valinu sem tré ársins 2024. Valið var tilkynnt með formlegri athöfn í skógarlundi í Varmahlíð síðastliðinn sunnudag. Skógarfura hefur ekki áður orðið fyrir valinu hjá Skógræktarfélagi Íslands

Skógarfura (Pinus sylvestris) í Varmahlíð í Skagafirði varð fyrir valinu sem tré ársins 2024. Valið var tilkynnt með formlegri athöfn í skógarlundi í Varmahlíð síðastliðinn sunnudag.

Skógarfura hefur ekki áður orðið fyrir valinu hjá Skógræktarfélagi Íslands. Á vef félagsins kemur m.a. fram að skógarfuran hafi verið gróðursett víða hér á landi á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar. Hún telst hins vegar sjaldgæf í dag eftir að furulús grandaði henni að mestu.

Athöfnin í Varmahlíð hófst með því að söngkvartettinn Vorvindar glaðir flutti nokkur lög. Jónatan Garðarsson, formaður Skógræktarfélags Íslands, ávarpaði gesti, en auk hans fluttu ávörp Ragnheiður Guðmundsdóttir, formaður Skógræktarfélags Skagfirðinga, og Hafberg Þórisson, eigandi Lambhaga ehf., sem er bakhjarl verkefnisins um Tré ársins. Var Skógræktarfélagi Skagfirðinga afhent viðurkenningaskjal sem eiganda trésins og skilti sem markar tréð afhjúpað.

Í frásögn héraðsfréttablaðsins Feykis kemur fram að tréð hafi venju samkvæmt verið mælt við athöfnina. Sá skógfræðingurinn og heimamaðurinn Johan Holst um það. Reyndist tréð 13,9 m á hæð með þvermál upp á 30,5 cm í brjósthæð.

Skógræktarfélag Íslands útnefnir árlega Tré ársins og er útnefningunni ætlað að beina sjónum almennings að starfinu sem unnið er um land allt í trjá- og skógrækt og benda á menningarlegt gildi einstakra trjáa um allt land.