Magdalena Anna Torfadóttir
magdalena@mbl.is
Munur á inn- og útlánsvöxtum heimila og fyrirtækja hjá íslenskum bönkum var einn sá minnsti í Evrópu á síðasta ári.
Þetta má lesa úr nýrri skýrslu Evrópska bankaeftirlitsins (EBA) en úrtakið í skýrslunni náði yfir 22 Evrópuþjóðir. Vaxtamunurinn var 2,2% hér á landi og einungis minni í Frakklandi og Þýskalandi en lönd eins og Noregur og Svíþjóð voru ein með meiri vaxtamun.
Í skýrslu EBA kemur fram að almennt hafi vaxtamunur aukist í Evrópu þar sem vextir á lánum hafi hækkað hraðar en vextir á innlánum. Vaxtamunurinn jókst milli ára í 18 af 22 löndum í úrtakinu, þar með talið Noregi og Svíþjóð. Vaxtamunurinn jókst að meðaltali í Evrópusambandinu úr 2,1% í 2,6% á milli áranna 2021 og 2023 og mest í Lettlandi, eða um 3,3 prósentustig.
Í skýrslunni kemur fram að Ísland skeri sig verulega úr í þróuninni, þar sem vaxtamunurinn hér á landi hafi minnkað um 1,3% milli áranna 2021 og 2023, úr 3,5% í 2,2%. Evrópska bankaeftirlitið gerir ekki ráð fyrir verulegri breytingu á vaxtamuninum á þessu ári og má því gera ráð fyrir að Ísland verði áfram með einn minnsta vaxtamuninn í Evrópu á þennan mælikvarða.
Þessi niðurstaða EBA rímar við umfjöllun í skýrslu starfshóps menningar- og viðskiptaráðuneytisins á síðasta ári, þar sem fram kom að vaxtamunur heimila á Íslandi mældist sá næstminnsti á Norðurlöndum.
Eftir að vextir hækkuðu í Evrópu vegna verðbólguskotsins sem fylgdi faraldrinum jókst vaxtamunurinn almennt hjá evrópskum bönkum sem leiddi til þess að hagnaður þeirra jókst verulega. Ísland hefur skorið sig nokkuð úr í þessari þróun. Arðsemi eigin fjár íslenska bankakerfisins hefur verið ein sú minnsta í Evrópu, og var sú þriðja minnsta af löndunum 22 í úrtaki EBA yfir vaxtamun og einungis minni í Þýskalandi og Frakklandi. Í síðustu skýrslu Seðlabankans um fjármálastöðugleika kom jafnframt fram að vextir á innlánum hefðu hækkað mun meira í hlutfalli við hækkun stýrivaxta en annars staðar í Evrópu.
Jákvætt fyrir neytendur
Gústaf Steingrímsson, hagfræðingur Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF), segir að þetta sé jákvætt fyrir neytendur, þó vaxtastigið í heild sé vissulega hátt nú um stundir. Alla jafna séu ýmsir kraftar að verki sem hafi áhrif á vaxtamun. Hluta af ástæðunni fyrir því að Ísland er með einna minnsta vaxtamuninn megi finna í miklum hreyfanleika íslenskra neytenda á fjármálamarkaði. Könnun Gallup fyrir SFF sem birt var fyrr á árinu sýndi að hreyfanleiki neytenda milli fjármálafyrirtækja væri meiri hér en í öllum löndum ESB. „Íslendingar eru duglegri en annars staðar í Evrópu að færa viðskipti sín eftir því hvar bestu kjörin bjóðast á hverjum tíma. Auðvelt er að stofna til bankaviðskipta í gegnum bankaöpp í snjallsímum hér á landi, sem ekki er raunin víða erlendis. Þá hefur ýmsum hindrunum verið rutt úr vegi sem auðvelda fólki að færa húsnæðislán sín milli lánveitenda á borð við afnám stimpilgjalda og takmörkun uppgreiðslugjalda.“
Mikil rekstrarhagræðing í bankakerfinu
Þessu til viðbótar kann sú mikla hagræðing og framleiðniaukning sem náðst hefur í fjármálageiranum hér á landi á síðustu árum, m.a. með sjálfvirknivæðingu, að eiga þátt í að skýra breytinguna. Seðlabankinn fjallaði um það nýlega að rekstrarkostnaður, þ.e. launakostnaður og annar rekstrarkostnaður, stóru bankanna þriggja hefði minnkað um 39% frá árinu 2011 eða sem samsvarar 50 milljörðum króna á ári á föstu verðlagi síðasta árs.
Þá er niðurstaðan einnig vísbending um að lækkun á einum af þeim sérsköttum, sem lagðir eru á íslenskt fjármálakerfi, árið 2020 hafi skilað sér til neytenda sem sé ánægjuleg niðurstaða og í samræmi við markmið stjórnvalda. Skattarnir eru þó enn töluvert hærri en í löndunum í kringum okkur.
Ráðgert er að tekjur ríkissjóðs af þeim sérsköttum og gjöldum á fjármálageirann nemi um 22 milljörðum króna á næsta ári, sem koma til viðbótar við skatta sem fjármálafyrirtæki borga líkt og önnur fyrirtæki.
Vaxtamunur
Vaxtamunurinn hér á landi minnkaði um 1,3% milli áranna 2021 og 2023, úr 3,5% í 2,2%.
Vaxtamunurinn jókst að meðaltali í Evrópusambandinu, úr 2,1% í 2,6%, milli áranna 2021 og 2023.
Rekstrarkostnaður stóru bankanna þriggja hefur minnkað um 39%.