Sóllilja er menntaður myndlistamaður og starfar bæði við hesta og listræna stjórnun og ráðgjöf ýmissa fyrirtækja. Hún á sjálf níu hesta, þar af fjögur ótamin trippi, folaldsmeri og fjögur fulltamin hross.
„Venjulega er ég með átta til tíu hesta í þjálfun. Mér hefur alltaf fundist hestar stórkostlegir og ekkert heldur athygli minni eins og hestur. Hestar eru strangheiðarlegir, sem ég kann mjög mikið að meta. Þeir spegla sjálfið manns og svo eru þeir það fallegasta sem til er og það að vinna traust hests er svo gefandi,“ segir hún.
„Ég ákvað að eltast við hestamennskuna eftir að ég átti samtal við föður minn þegar ég var í óvissu með hvað mig langaði til að vinna við. Þá sagði hann mér að ég ætti að velja þá iðju þar sem ég gleymi mér algjörlega og þrái að vera. Það var ekkert annað sem kom til greina en að velja hestana. Ég gleymi að það sé til klukka þegar ég er í hesthúsinu, fjölskyldu minni oft til mikils ama,“ útskýrir hún.
Þegar fagurfræði og notagildi mætast
Sóllilja er mikill fagurkeri og leggur mikið upp úr því að hafa fallegt í kringum sig, en sumarið 2022 festi hún kaup á hesthúsi sem hún hefur gert upp á glæsilegan máta.
„Það skiptir mig mjög miklu máli að gera fallegt í kringum mig. Ég er uppi í hesthúsi frá klukkan átta á morgnana til klukkan sjö eða átta á kvöldin, þannig að ég eyði meiri tíma þar heldur en heima. Ég á mjög erfitt með að einbeita mér ef það er ekki hreint og fínt hjá hestunum og það skiptir mig miklu máli að þeim líði vel, hafi nóg pláss í stíunni og þyki gott að leggjast niður á þurran og hreinan púða,“ segir hún.
„Það er því mikilvægt að andrúmsloftið í hesthúsinu sé gott sem og stemningin, þannig að mér finnist gaman að koma í hesthúsið og njóti þess að vera þar – þá er það orkan sem fer í hestana. Ég leyfi mér að hlakka til að koma í hesthúsið og trúi því að þeir finni það,“ bætir hún við.
Þegar Sóllilja hafði fest kaup á hesthúsinu var fyrsta verkefni hennar að stækka stíurnar. „Þetta voru tíu til tólf hesta hús og nú er það fyrir átta hesta svo stíurnar eru mjög rúmar. Einnig voru djúpar safnstíur í húsinu, en þær voru fylltar með möl og svo voru settar jarðvegsgrindur og fínni möl í þær. Það er gólfhiti og drenlögn í botninum þannig að stíurnar haldast þurrar og góðar. Ofan á grindurnar set ég svo einn til tvo poka af spæni sem hestarnir liggja á,“ útskýrir hún.
„Ég reif niður vegg í kaffistofunni, bæsaði panelinn, sem gerði mjög mikið, og lakkaði alla lista. Svo var keypt nýtt klósett og vaskur ásamt eldhúsinnréttingu. Flísar á baði og gangi við stigann voru svo þaktar með steinefnaspartli frá Sérefni, en þau voru svo æðisleg þar og hjálpuðu mér við allt ferlið, enda kaupi ég alla málningu í húsið þar,“ bætir hún við.
Sótti innblástur í hótel í Skotlandi
Aðspurð segist Sóllilja hafa viljað skapa hlýlega stemningu en um leið halda í strúktúr hússins. „Mig langaði að geta komið upp á kaffistofu, gluggað í bók eða unnið í tölvunni, fengið mér kaffi og smá að borða, og liðið eins og ég væri heima hjá mér. Einnig fannst mér mikilvægt að hnakkageymslan væri tengd við kaffistofuna þótt það væri á neðri hæðinni, en ég ákvað að það væri ekki lokað á milli heldur væri þetta ein heild. Ég nefnilega elska reiðtygi – mér finnst þau svo sjúklega falleg og sjarmerandi, enda stærstu tískuhús heims sem eiga rót sína í söðlasmíði. Þannig að það skipti mig máli að það væri hluti af stemningunni,“ segir hún.
Fyrir kaffistofuna sótti Sóllilja innblástur í hótel í Skotlandi sem heitir Fife Arms. „Kaffistofan er ennþá í vinnslu og ég er alltaf að bæta einhverju við og breyta. Húsgögnin eru frá Heimili og hugmyndum. Svo keypti ég leikmynd úr sjónvarpsþáttum sem við gerðum í sumar, en leikmyndahönnuðirnir voru búnir að ferðast um allan heim og finna allskona hestastyttur og fallegar mottur á mörkuðum og í antíkbúðum,“ segir hún.
Í hesthúsinu sjálfu lagði Sóllilja áherslu á að velja liti sem hentuðu rýminu. „Það kom eiginlega ekkert annað til greina en að mála boxin sjálf svört, en draumurinn væri að skipta plastinu í milligerðum og hurðum og hafa þar timbur. Á móti langaði mig ekki í hvítan lit á vegginn heldur eitthvað aðeins mýkra sem myndi samt halda birtunni – því varð þessi ljósi litur fyrir valinu sem heitir Kubel Soft Oak,“ segir hún.
„Síðan vildi ég hafa gúmmímottur á gólfinu, bæði upp á hljóðgæði í húsinu og svo finnst mér hestarnir vera rólegri og öruggari þegar þeir ganga á gúmmímottum. Hnakkageymsluna málaði ég með kalkmálningu – það er steyptur veggur og því fannst mér eiginlega ekkert annað koma til greina. Satt best að segja hefði ég viljað mála allt húsið með kalkmálningu en það er fullmikið viðhald inni í hestarýminu sjálfu og mikil vinna, en kannski skelli ég mér í það einn daginn og lakka yfir til að verja kalkið,“ bætir hún við.
„Ég leitaði síðan mjög lengi að hnakkastatífum sem mig langaði að setja í hnakkageymsluna með engum árangri – það var bara ómögulegt. Þannig að góður vinur minn smíðaði þau fyrir mig eftir minni hönnun og ég valdi efnið sérstaklega líka. Ég elska þessi statíf og þau gera algjörlega hnakkageymsluna,“ útskýrir Sóllilja.