Maðurinn sem lést í vinnuslysi á byggingarsvæði í Árborg sl. þriðjudag hét Eiríkur Rúnar Eiríksson og var fæddur 1974. Tilkynnt var um alvarlegt slys við nýbyggingu og var lögregla og sjúkralið sent á vettvang
Maðurinn sem lést í vinnuslysi á byggingarsvæði í Árborg sl. þriðjudag hét Eiríkur Rúnar Eiríksson og var fæddur 1974.
Tilkynnt var um alvarlegt slys við nýbyggingu og var lögregla og sjúkralið sent á vettvang. Hafði Eiríkur Rúnar þá fallið fram af húsþaki, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Hann var úrskurðaður látinn á vettvangi.
Frekari upplýsingar um tildrög slyssins hafa ekki verið gefnar, en lögreglan á Suðurlandi fer með rannsókn málsins.