Goð Jordan gerði tímamótasamning við Nike.
Goð Jordan gerði tímamótasamning við Nike. — AFP
Ég sá myndina Air á Amazon Prime fyrir nokkru. Já, þær eru ófáar streymisveiturnar og maður má hafa sig allan við til að muna hvað maður sá hvar. Ég hafði gaman af myndinni enda áhugamaður um níunda áratuginn

Kristján Jónsson

Ég sá myndina Air á Amazon Prime fyrir nokkru. Já, þær eru ófáar streymisveiturnar og maður má hafa sig allan við til að muna hvað maður sá hvar.

Ég hafði gaman af myndinni enda áhugamaður um níunda áratuginn. Margt sem snýr að Michael Jordan þykir mér auk þess merkilegt og í þessu tilfelli lagði Nike grunninn að stórveldi með því að veðja á þann unga mann frá Norður-Karólínu árið 1984.

Öflugt leikaralið kemur fyrir í myndinni og gömlu félagarnir úr Good Will Hunting, Matt Damon og Ben Affleck, vinna til að mynda saman einu sinni enn. Þeir hafa reyndar oft verið glæsilegri á velli en í þessari mynd en þeir eiga að líkjast ákveðnum mönnum þar sem myndin er byggð á sannsögulegum atburðum.

Mér fannst ræman fín innsýn í þá atburðarás þegar Jordan hætti við að velja Adidas og samdi við Nike í staðinn. En þegar ég ræddi við vin minn um myndina nálgaðist hann málið úr allt annarri átt og furðaði sig á því að hægt hefði verið að framleiða mynd um að íþróttamaður fengi skósamning.

Já, reyndar virkar það ekki mjög eggjandi umfjöllunarefni. En á tímum streymisveitna veitir ekki af því að finna umfjöllunarefni víða.

Höf.: Kristján Jónsson