Fjármálaráðuneytið hefur lagt til að bætt verði við fjárlagafrumvarp næsta árs heimild til að standa að stofnun sjóðs um verk Jóns Leifs tónskálds og ráðstöfun eigna og réttinda úr dánarbúi sonar hans til slíks sjóðs sem annars myndu renna til ríkissjóðs.
Er þetta gert að beiðni menningar- og viðskiptaráðuneytisins, sem hefur óskað eftir að stofnaður verði tónskáldasjóður um verk Jóns Leifs.
Fram kemur í minnisblaði sem fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur sent fjárlaganefnd Alþingis að Leifur, sonur Jóns, lést á síðasta ári, en hann var eini erfingi Jóns Leifs. Þar sem Leifur átti enga lögerfingja muni eignir úr dánarbúinu renna til ríkissjóðs í samræmi við ákvæði erfðalaga. Unnið hafði verið að stofnun sjóðs um verk Jón Leifs í samræmi við það sem kom fram í erfðaskrá sem Jón lét eftir sig. Ekki tókst hins vegar að ljúka stofnun sjóðsins meðan Leifur var á lífi. Af þeim sökum sé þörf á að afla sérstakrar heimildar til að ráðstafa höfundarrétti af tónverkum Jóns Leifs ásamt fjármunum úr dánarbúi Leifs til sérstaks tónskáldasjóðs sem til stendur að koma á fót.
Um er að ræða um 20 milljóna króna innistæður á bankareikningi og höfundarréttargreiðslur sem eru áætlaðar um 550 þúsund krónur árlega til ársins 2039.
Jón Leifs fæddist árið 1899 og lést 1968. Hann samdi tónlist sem nú talin með því merkasta sem gert hefur verið í íslenskri tónlist. gummi@mbl.is