Svarað Sigmundur Davíð mætti í rúgbýpeysu frá Oxford í þáttinn og sagði frá áhuga sínum á flíkum af því tagi.
Svarað Sigmundur Davíð mætti í rúgbýpeysu frá Oxford í þáttinn og sagði frá áhuga sínum á flíkum af því tagi.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
„Ný ríkisstjórn mun þurfa að ná tökum á ríkisfjármálunum því þau hafa áhrif á allt hitt. Þau hafa gríðarleg áhrif á verðbólguna eins og við höfum séð og þar af leiðandi vextina, á möguleika fólks til að eignast húsnæði

Spursmál

Stefán E. Stefánsson

ses@mbl.is

„Ný ríkisstjórn mun þurfa að ná tökum á ríkisfjármálunum því þau hafa áhrif á allt hitt. Þau hafa gríðarleg áhrif á verðbólguna eins og við höfum séð og þar af leiðandi vextina, á möguleika fólks til að eignast húsnæði. Þau hafa áhrif á allt í samfélaginu. Því á endanum þarf fólk að borga, almenningur, skattgreiðendur, ef ríkið er rekið með halla.“

Þetta segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins í nýjasta þætti Spursmála þegar hann er spurður út í hvert yrði hans helsta forgangsverkefni ef honum tækist að mynda meirihluta að loknum næstu þingkosningum.

Forstöðumenn axli ábyrgð

Spurður hvernig hann hyggist ná hallalausum fjárlögum segir hann að annars vegar þurfi að fara betur með þá fjármuni sem varið er í ríkisreksturinn og hins vegar þurfi einfaldlega að leggja af óþörf verkefni.

Hann segir mikilvægt að sýna aðhald og að ef forstöðumenn ríkisstofnana haldi sig ekki innan fjárheimilda verði það að hafa afleiðingar.

„Það teldist eðlilegt í almennum fyrirtækjarekstri að ef menn eyða alltaf meiri og meiri peningum og fá minna og minna fyrir þurfi þeir annaðhvort að taka sig á eða að fá aðra nýja. Auðvitað þekkjum við að það er orðið mjög erfitt að reka opinbera starfsmenn og það getur alveg þurft að fara í það að gefa þeim séns en ef þeir standa sig ekki að fara þá í þær breytingar sem þarf að fara í til þess að hægt sé að skipta,“ segir Sigmundur Davíð.

Spanderi ekki í nýjan óþarfa

En spurður út í verkefnin sem leggja þurfi af segir hann að ríkið þurfi fyrst og síðast að hætta að stofna til nýrra óþarfa útgjalda. Nefnir hann í því sambandi nýja Mannréttindastofnun sem komið var á laggirnar á vorþingi.

Þegar Sigmundur er spurður út í fullyrðingar þess efnis að stofnunin eigi raunar rætur að rekja til skuldbindinga sem ríkisstjórn hans, sem sat á árunum 2013-2016, hafi undirgengist segir hann það af og frá. „Það þurfti ekki að stofna enn aðra mannréttindastofnunina til að standa við einhverjar skuldbindingar og ég myndi mæla með því að menn gjaldi alltaf varhug við því að menn verði að gera eitthvað vegna alþjóðlegra skuldbindinga,“ ítrekar hann.

Svandís setur skilyrðin

Hann er spurður út í atburði í upphafi vikunnar þegar dómsmálaráðherra greip inn í lögregluaðgerð og stöðvaði brottflutning á palestínskri fjölskyldu sem úrskurðað hafði verið að ætti rétt til hælis á Spáni. Hann segir að hann hefði aldrei látið undan þrýstingi VG í þessu máli, enda hafi málið þá þegar fengið þá efnislegu meðferð sem kveðið er á um.

Hann segir að Sjálfstæðisflokkurinn sé í raun upp við vegg í samstarfi við VG. Svandís Svavarsdóttir hafi runnið á lyktina og muni nú stilla samstarfsflokknum upp við vegg í hverju málinu á fætur öðru. Á sama tíma telur hann að Bjarni Benediktsson stefni á kosningar á komandi vori.

Spurður út í stöðu Miðflokksins, sem farið hefur með himinskautum í könnunum, segir Sigmundur Davíð ekki liggja fyrir hvernig listar flokksins verði skipaðir og að eins liggi ekki fyrir hvernig staðið verði að vali á þeim. Erfitt sé að leggja út í slíka vegferð þegar enn ríki mikil óvissa um það hvenær gengið verði til kosninga.

Viðtalið við Sigmund Davíð má sjá og heyra í heild sinni á mbl.is og hlaðvarpsveitum á borð við Spotify.

Höf.: Stefán E. Stefánsson