Eldur Mikil mildi þykir að engan sakaði þegar eldur kom upp í rútu við munna Vestfjarðaganga nú á dögunum.
Eldur Mikil mildi þykir að engan sakaði þegar eldur kom upp í rútu við munna Vestfjarðaganga nú á dögunum.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
„Vonandi getur sá búnaður sem nú er kominn í allar nýjar rútur afstýrt atvikum eins og við sáum fyrir vestan á dögunum,“ segir Sigurður Einar Steinsson, sölustjóri hópbíla hjá Sleggjunni ehf

Sigurður Bogi Sævarsson

sbs@mbl.is

„Vonandi getur sá búnaður sem nú er kominn í allar nýjar rútur afstýrt atvikum eins og við sáum fyrir vestan á dögunum,“ segir Sigurður Einar Steinsson, sölustjóri hópbíla hjá Sleggjunni ehf. Fyrirtækið hefur Íslandsumboð fyrir rútur af gerðinni Mercedes-Benz. Fyrirtækið er umsvifamikið á sínu sviði og hefur flutt inn og selt fjölda bíla á síðustu árum. Allir eru þeir útbúnir nýjustu tæki og búnaði sem er samkvæmt ströngustu skilmálum þar sem mjög er horft til öryggismála.

Búnaður blikkar og flautar

Umræða hefur skapast um öryggisatriði eftir að eldur kom upp á dögnum í rútu sem rétt var komin út úr norðurmunna Vestfjarðaganga. Mildi er að eldurinn kom upp utan ganganna, svo munaði aðeins örfáum tugum metra. Eldsvoði í jarðgöngum er alltaf illviðráðanlegur, eins og mörg dæmi eru um. Rútubruninn hefur einnig leitt til þess að velt er upp spurningum um göngin sjálf og hvort gera þurfi úrbætur á þeim – og öðrum slíkum.

Í rútum nútímans er áskilnaður um að í vélarrúmi aftast í bílunum skuli vera viðvörunarbúnaður sem blikkar og flautar fari hitastig í vélinni yfir 140°. Fyrir fimm árum komu svo Evrópureglur sem kveða á um að í bílnum sé sjálfvirkur slökkvibúnaður sem sprautar froðu og efni á eld í vélarrúmi.

Flotinn endurnýjast hratt

„Rútuflotinn í landinu hefur endurnýjast hratt á síðustu árum og því eru eldvarnir í bílum að komast í ágætt horf. Þá eru bílarnir í dag yfirleitt vel einangraðir og sterk skilrúm eru milli hólfa. Þau eiga að koma í veg fyrir eða að minnsta kosti hægja á að eldur breiðist út um stóra bíla; að til dæmis farþegar komist út í tíma ef vá steðjar að,“ segir Sigurður.

Öryggismál eru að sjálfsögðu algjört forgangsatriði í farþegaflutningum, segir viðmælandi. Þau viðhorf eru ríkjandi bæði meðal þeirra sem gera bílana út og eins til dæmis ferðaskrifstofa, sem oft gera kröfur um að lagðir séu til nýlegir bílar með tilteknum búnaði. Því leiðir af sjálfu sér að rútur í dag eru öruggari en áður, hvort sem litið er til eldvarna eða annars.