Árni Halldórsson Hafstað
Um daginn heyrði ég fjármálaráðherra lýsa á Bylgjunni eftir fleiri verkfærum til handa seðlabankastjóra í baráttu við verðbólguna. Það leiddi huga minn að grein sem ég fékk birta í Morgunblaðinu fyrir um ári um sanngjarnari leið en vaxtahækkanir til að rjúfa vítahring verðbólgu og vaxta.
Þar stakk ég upp á að seðlabankastjóri gæti beitt skyldusparnaði til viðbótar við vaxtahækkanir. Skyldusparnaður yrði settur á öll laun og sá sparnaður settur á vaxtareikning í eigu launþegans. Þannig mætti minnka peninga í umferð (líka af launum þeirra sem ekkert skulda), án þess að hækka vexti (sem færa eignir frá skuldurum til bankanna og hægja á húsnæðisbyggingum). Hafa ber í huga að skortur á húsnæði er talinn ein af höfuðástæðum verðbólguvárinnar.
Af 40 milljóna skuld hafa mánaðarlegar afborganir hækkað úr 200 í 300 þúsund á síðustu þremur árum. Ef farin hefði verið skyldusparnaðarleið í stað vaxtahækkana fyrir þremur árum væri staðan hugsanlega sú að þeir sem skulda 40 milljónir hefðu nú mánaðarlegar afborganir upp á 200 þúsund kr. og skyldusparnað upp á 100 þúsund. Ættu þeir 3,6 milljónir eftir þessi þrjú ár á skyldusparnaðarreikningi og gætu lækkað fasteignaskuldina um þá upphæð. Skuldlausir hefðu skyldusparnað upp á 100 þúsund mánaðarlega. Eftir þessi þrjú ár væri sparnaðurinn 3,6 milljónir sem þeir eiga til elliáranna.
Vextir hefðu ekki breyst og því ekki haft áhrif á vilja til húsbygginga. Því hefði skyldusparnaðarleiðin leitt til:
Minni eignafærslu frá skuldurum til bankanna.
Lækkunar húsnæðisskulda almennings.
Hraðari minnkunar peninga í umferð (hinir skuldlausu spara líka) og því hraðari lækkunar verðbólgu.
Minni áhrifa vaxtahækkana á verðlag og því hraðari hjöðnunar verðbólgu.
Meira framboðs á húsnæði og því lægra húsnæðisverðs og lækkunar verðbólgu.
Fólk getur tekið lán á lægri vöxtum, sem gerir því kleift að kaupa húsnæði og nýjar eignir, lenda ekki eingöngu í höndum fjármagnseigenda til útleigu.
Er ekki helsta markmið Seðlabankans á verðbólgutímum að slá á þenslu í hagkerfinu, frekar en að fóðra banka og fjármagnseigendur? Skikkið mig frekar til að spara!
Höfundur er athafnamaður.