Bæjaryfirvöld í Garðabæ hafa hug á að útvíkka vaxtarmörk bæjarins, frá því sem mælt er fyrir um í svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins sem sveitarfélögin þar standa að. Stendur vilji Garðabæjar til að skipuleggja byggingarland í Rjúpnahlíð, norðan…
Bæjaryfirvöld í Garðabæ hafa hug á að útvíkka vaxtarmörk bæjarins, frá því sem mælt er fyrir um í svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins sem sveitarfélögin þar standa að.
Stendur vilji Garðabæjar til að skipuleggja byggingarland í Rjúpnahlíð, norðan Vífilsstaðavatns, og gera áætlanir Garðabæjar ráð fyrir því að í Rjúpnahlíð verði atvinnusvæði.
Ef breytingar á svæðisskipulagi eiga að hljóta framgang verða breytingar að gerast á vettvangi þess, sem þýðir að samþykki allra sveitarfélaganna þarf til að samþykkja breytingar á því. » 16