Skúlagata Íbúarnir voru mótfallnir hinni nýju skiptistöð strætisvagna.
Skúlagata Íbúarnir voru mótfallnir hinni nýju skiptistöð strætisvagna. — Morgunblaðið/Eggert
Settur hefur verið upp búnaður í strætisvagna svo hægt sé að sjá hvort slökkt hafi verið á vélum vagnanna og hve lengi þeir eru í gangi. Þetta upplýsir samgöngustjóri Reykjavíkurborgar í svari við fyrirspurn Kolbrúnar Áslaugar Baldursdóttur, borgarfulltrúa Flokks fólksins

Settur hefur verið upp búnaður í strætisvagna svo hægt sé að sjá hvort slökkt hafi verið á vélum vagnanna og hve lengi þeir eru í gangi.

Þetta upplýsir samgöngustjóri Reykjavíkurborgar í svari við fyrirspurn Kolbrúnar Áslaugar Baldursdóttur, borgarfulltrúa Flokks fólksins.

Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 4. september 2024, var lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:

„Ábendingar hafa borist um að íbúar við Skúlagötu hafi orðið fyrir óþægindum vegna hávaða og mengunar, sem berst frá strætisvögnum við nýja endastöð þeirra við Skúlagötu. Meðal annars sé næturró raskað vegna lausagangs vagnanna. Óskað er eftir upplýsingum um hvort og þá hvernig komið verður til móts við kvartanir íbúanna.“

Svar samgöngustjórans var lagt fram á fundi ráðsins 25. september. „Skýrt er að óheimilt er að hafa vagna í lausagangi við biðstöðina og vinnur Strætó að því að leiðrétta hegðun vagnstjóra sem ekki hafa gætt að því,“ segir samgöngustjórinn.

Meðal þess sem gert hefur verið er að ræða við vagnstjóra um að slökkva á vélum vagnanna. Eftirlitsmenn á vegum Strætós hafa farið á tímabundna endastöð við Skúlagötu til að fylgjast með því hvort slökkt sé á vögnunum.

Áætlað er að setja upp skilti til að minna vagnstjóra á að hafa vagnana ekki í gangi að óþörfu. Loks hafi verið settur fyrrgreindur búnaður í vagnana.

Eins og fram hefur komið í fréttum voru íbúar við Skúlagötu mótfallnir því að fá skiptistöð Strætós í götuna. Nýtt deiliskipulag var kært til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála sem hafnaði stöðvun framkvæmda. sisi@mbl.is