Haukur Camillus Benediktsson, framkvæmdastjóri fjármálastöðugleikasviðs Seðlabankans, segir að ef skuldahlutföll séu skoðuð þá hafi þau sjaldan verið lægri í sögulegu samhengi.
Haukur Camillus Benediktsson, framkvæmdastjóri fjármálastöðugleikasviðs Seðlabankans, segir að ef skuldahlutföll séu skoðuð þá hafi þau sjaldan verið lægri í sögulegu samhengi. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
Haukur Camillus Benediktsson, framkvæmdastjóri fjármálastöðugleikasviðs Seðlabanka Íslands, segir að þótt takmarkaðar vísbendingar séu fyrir hendi enn sem komið er þá gæti það farið svo að vanskil aukist í núverandi efnahagsumhverfi

Magdalena Anna Torfadóttir

magdalena@mbl.is

Haukur Camillus Benediktsson, framkvæmdastjóri fjármálastöðugleikasviðs Seðlabanka Íslands, segir að þótt takmarkaðar vísbendingar séu fyrir hendi enn sem komið er þá gæti það farið svo að vanskil aukist í núverandi efnahagsumhverfi.

Þrátt fyrir hátt vaxtastig segir Seðlabankinn enn lítil merki um vaxandi greiðsluerfiðleika á útlánum banka til heimila.

Haukur segir Seðlabankann fylgjast vel með stöðunni og að hann sjái enn sem komið er engin sérstök hættumerki.

„Við erum alltaf að fylgjast með og vanskil gætu farið að aukast hjá heimilum og fyrirtækjum. Viðnámsþróttur heimila og fyrirtækja er þó mikill um þessar mundir.“

Haukur bætir við að ef skuldahlutföll séu skoðuð þá hafi þau sjaldan verið lægri í sögulegu samhengi.

„Við höfum mjög góðar upplýsingar um skuldir heimilanna í bankakerfinu. Raunvöxtur skulda heimila sveiflast í kringum núllið þannig að raunvöxturinn er lítill ef nokkur. Skuldahlutföll hafa sjaldan verið lægri í sögulegu samhengi og skuldavöxtur verið hóflegur á undanförnum árum. Þannig að staðan er góð sem slík,“ segir Haukur.

Hann bætir við að Seðlabankinn hafi enn sem komið er ekki séð merki þess í gögnum sínum að skuldsetning heimilanna sé að aukast. Bankinn sjái þó að lánstíminn sé að styttast og löng lán ekki jafn algeng og áður fyrr.

„Ég tel að ekkert fari framhjá okkur sem skiptir verulegu máli. Við erum að horfa á vanskil í bankakerfinu og þar líta tölurnar ágætlega út. Við fylgjumst þó vel með öðrum gögnum einnig,“ segir Haukur.

Höf.: Magdalena Anna Torfadóttir