Þorsteinn Þorsteinsson og Gunnlaugur Sigurðsson
Fyrir nokkrum árum komum við undirritaðir því til leiðar að hingað til lands kom þekktur breskur sérfræðingur í menntamálum og jafnframt mjög virtur prófessor á Englandi. Hann hélt hér fundi með mörgum skólamönnum og ráðamönnum íslenskra menntamála. Á einum fundinum sagði borubrattur skólastjóri grunnskóla að hann væri með mjög góðan skóla. „Hvernig veistu það? Hvað ertu með í höndunum til að sannprófa það?“ kom samstundis frá hinum breska. „Ég bara veit það,“ var svar skólastjórans og við sáum að sá breski ranghvolfdi augunum. Hann hélt áfram: „Góður skipstjóri veit nákvæmlega hvenær veiðitúrinn er góður, hann veit hvaða árangri hann hefur náð og getur sannprófað auðveldlega hver aflinn er á hverjum tíma. Þetta gildir um alla góða stjórnendur í öllum góðum stofnunum, fyrirtækjum og félögum. Æðstu embættismenn og ráðamenn þjóðar ættu að tileinka sér þessa hugsun og vinnubrögð.“ Þessi orð hins breska sérfræðings koma oft upp í hugann þegar ráðamenn fullyrða eitthvað sem svo stenst enga skoðun. Hvað ætli menntamálaráðherra hafi í höndunum þegar hann fullyrðir að samræmd próf séu gagnslítil?
Miðlægur mælanlegur námsárangur
Í öllu skólastarfi er afar mikilvægt að setja sér raunhæf markmið og ákveða um leið aðferðir til að mæla árangur. Samræmd próf voru aðferð sem veitti mjög gagnlegar upplýsingar um stöðu nemenda og árangur í skólum. Fram hjá því verður ekki horft.
Lestur og læsi
Það var afar dapurlegt að heyra og sjá upplýsingar um að mörg börn þekki ekki stafina í lok 1. bekkjar grunnskólans. Við höfum í fyrri greinum okkar bent á að mikilvægt sé að foreldrar og skólar taki saman höndum til að tryggja að börnum okkar gangi sem best í skólanum. Gott er að foreldrar búi börn sín vel undir fyrstu skrefin í skólagöngunni. Hlutverk foreldra er að lesa reglulega fyrir börn sín. Ekki síðar en við þriggja ára aldur þarf að byrja að kenna þeim á stafina og prófa að kenna þeim að lesa. Margar góðar bækur eru til fyrir ung börn. Gott er að nota fyrst bækur með litskrúðugum myndum og skýrum stöfum. Með þessu öllu er börnum sýnt að mikill undraheimur leynist í bókunum. Bóklestur af ýmsu tagi á að vera hátíðar- og gæðastund á hverju heimili.
Upphaf lestrarkennslu
Mikilvægt er að koma á þéttu sambandi og samvinnu foreldra og skóla strax við byrjun skólagöngunnar. Ýmsar lestraraðferðir eru til. Foreldrar ættu að geta leitað til skólanna ef erfiðlega gengur í byrjun. Þá kemur vel til greina að grunnskólar bjóði foreldrum upp á fræðslu, t.d. með stuttum námskeiðum um kennslu í fyrsta lestri og jafnvel einföldum atriðum barnauppeldis.
Staðan í íslenskum leik- og grunnskólum er verulegt áhyggjuefni
Ísland er undir OECD-viðmiðum í mörgum greinum. Fjölmargir ráðamenn í skóla- og menntamálum þjóðarinnar hafa ekki tekið mark á Pisa-niðurstöðum síðustu ára eða jafnvel áratuga og þess vegna hafa nauðsynlegar úrbætur og breytingar ekki verið gerðar í grunnskólanum. Á síðustu árum og áratugum hafa mætir menn ítrekað bent á hvert stefndi og komið fram með góðar ábendingar og breytingar til úrbóta. En því miður hefur ekki enn verið á það hlustað.
Staða íslenskra grunnskólanemenda er þess vegna enn afar slök og fer jafnvel enn versnandi ef miðað er við Pisa-prófin á síðustu tveimur áratugum. Þá fara depurð og kvíði meðal unglinga vaxandi, sem er án efa afleiðing alls þessa. Nýbirtar rannsóknir á þessu efni eru mjög alvarlegar. Á þessum vanda þarf að taka þegar í stað ef ekki á að fara enn verr.
Stjórnmálamenn, ráðamenn skólamála, skólastjórar, forystumenn kennara, kennarar og ýmsir fleiri: Tökum höndum saman og gerum skóla- og fræðslumál að öndvegisvelferðarmálum þjóðarinnar, börnum og framtíð þjóðar til heilla!
Þorsteinn er fyrrverandi skólameistari og Gunnlaugur er fyrrverandi skólastjóri.