Jónstótt Móttaka verður á neðri hæð og vinnuaðstaða á efri hæð.
Jónstótt Móttaka verður á neðri hæð og vinnuaðstaða á efri hæð. — Ljósmynd/Guðný Dóra Gestsdóttir
„Það er ekki verið að breyta Gljúfrasteini sjálfum, heldur er verið að breyta húsinu Jónstótt í móttökuhús,“ segir Guðný Dóra Gestsdóttir safnstjóri á Gljúfrasteini. Fyrirhugaðar eru breytingar þar sem fela í sér að hægt verður að nýta allt…

Óskar Bergsson

oskar@mbl.is

„Það er ekki verið að breyta Gljúfrasteini sjálfum, heldur er verið að breyta húsinu Jónstótt í móttökuhús,“ segir Guðný Dóra Gestsdóttir safnstjóri á Gljúfrasteini. Fyrirhugaðar eru breytingar þar sem fela í sér að hægt verður að nýta allt Gljúfrasteinshúsið sem safn, en fram að þessu hefur öll starfsemi safnsins verið inni í húsinu. „Þetta er hús sem Sigríður Halldórsdóttir, dóttir Auðar og Halldórs Laxness, byggði og ríkið eignaðist árið 2019. Jónstótt verður nýtt undir starfsemi Gljúfrasteins og léttir um leið á safninu sem þar er. Á neðri hæðinni verður móttaka og á efri hæðinni vinnuaðstaða fyrir starfsfólk.“

Guðný Dóra segir að til standi að breyta Þingvallaveginum þar sem sett verða niður tvö hringtorg í dalnum þannig að aðkoman að Glúfrasteini verður upp Jónstóttarveg að Jónstótt, sem verður fyrsti aðkomustaður gesta að Gljúfrasteini.

Verkið felst í rifi veggja innanhúss og endurnýjun innréttingar, fullnaðar-yfirborðsfrágangi lofta og veggja, gólfefna og endurnýjun lagna. Smíða á sólskála vestan megin hússins. „Nýju bílastæðin við Jónstótt munu líka nýtast þeim sem stunda útivist á svæðinu og göngustígurinn að Helgufossi er vinsæl og falleg gönguleið,“ segir Guðný Dóra.