Fíkniefnamál Aðalmeðferð hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
Fíkniefnamál Aðalmeðferð hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. — Morgunblaðið/Karítas
Aðalmeðferð hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær í stóru fíkniefnamáli vegna glæpahóps sem grunaður er um innflutning, vörslu, sölu og dreifingu fíkniefna. Sakborningar málsins eru 15. Þeir voru upprunalega 18 en þrír ákærðu hafa játað sök og hafa mál þeirra því verið skilin frá stóra málinu

Aðalmeðferð hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær í stóru fíkniefnamáli vegna glæpahóps sem grunaður er um innflutning, vörslu, sölu og dreifingu fíkniefna. Sakborningar málsins eru 15. Þeir voru upprunalega 18 en þrír ákærðu hafa játað sök og hafa mál þeirra því verið skilin frá stóra málinu. Nokkrir sakborninganna hafa játað brot sitt að hluta.

Málið hefur verið kallað Sólheimajökulsmálið og er þar vísað til spjallhóps nokkurra sakborninga, sem nefndur var eftir jöklinum.

Jón Ingi Sveinsson, annar höfuðpauranna í málinu, var fyrstur til að gefa skýrslu fyrir dóminum. Karl Ingi Vilbergsson saksóknari bar undir hann tengsl við hina átta sakborningana sem ákærðir eru fyrir fyrsta kafla ákærunnar, þ.e.a.s. stórfellt fíkniefnabrot. Hann sagði flesta vera vini, vinkonur eða kunningja.

Næst bar Karl Ingi hljóðritanir lögreglu undir hann. Verjandi hans mótmælti því harðlega og sagði gögnin vera ólögleg þar sem þau voru gerð meðan Jón Ingi var erlendis. Hann neitaði að svara fyrir hljóðritanirnar þar sem þær voru gerðar í janúar á þessu ári er hann var staddur í Dóminíska lýðveldinu. Þá vildi hann ekki heldur kannast við samskiptin. Jón Ingi sagði ítrekað að hann ætlaði ekki að ræða samskiptin. Hann hefði verið erlendis og um ólögleg gögn væri að ræða. „Lögreglan verður að fara eftir lögum líka.“

Ekki meira frá Svedda

Samskiptin héldu áfram fram á vorið. Meðal annars er talað um hlutverk sakborninganna í brotastarfseminni og að einn þeirra skuldi Jóni Inga 10 milljónir króna. Sá er sakaður um að hafa ætlað að flytja inn fíkniefni falin í pottum með skemmtiferðaskipi.

Þá var minnst á hinn alræmda Sverri Þór Gunnarsson, sem er betur þekktur sem Sveddi tönn. Hann situr í fangelsi í Brasilíu fyrir fíkniefnalagabrot og var meðal annars tengdur við Stóra kókaínmálið.

Í samtölunum er minnst á að það komi ekki meiri fíkniefni frá Svedda tönn í bráð. „Það er ferlegt að fá ekki meira frá tönninni, allavega í bili.“ Þá virðist Jón Ingi hafa íhugað að flytja til Brasilíu. Nánar á mbl.is.