Dagur B. Eggertsson
Dagur B. Eggertsson
Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs og fyrrverandi borgarstjóri, sagði í gærkvöldi að sér hefði brugðið við að sjá skilaboð sem Kristrún Frostadóttir sendi, þar sem kjósanda var ráðlagt að strika út nafn Dags auk þess sem hann var fullvissaður…

Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs og fyrrverandi borgarstjóri, sagði í gærkvöldi að sér hefði brugðið við að sjá skilaboð sem Kristrún Frostadóttir sendi, þar sem kjósanda var ráðlagt að strika út nafn Dags auk þess sem hann var fullvissaður um að hann myndi ekki fá ráðherraembætti ef Samfylkingin færi í ríkisstjórn.

Ummæli Dags féllu í Silfrinu í Ríkissjónvarpinu, en hann er í öðru sæti Samfylkingarinnar í Reykjavík norður þar sem Kristrún er oddviti listans. Í máli Dags kom fram að hann hefði ekki gert kröfu um ráðherrastól en hann sagði jafnframt að hann teldi ótímabært að úthluta þeim stólum. Hann teldi rétt að kjósa fyrst og ræða svo verkaskiptingu. Þá sagði Dagur að þau Kristrún hefðu rætt saman um málið og skilið í sátt.

Ekki náðist í Dag eða Kristrúnu í gær þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.