Skerjafjörður Fyrirhuguð íbúðabyggð er í næsta nágrenni við flugvöllinn.
Skerjafjörður Fyrirhuguð íbúðabyggð er í næsta nágrenni við flugvöllinn. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Isavia undirrbýr nú umsókn til Samgöngustofu um færslu girðingar við Reykjavíkurflugvöll vegna fyrirhugaðrar íbúðabyggðar í Skerjafirði. Þessi vinna var sett af stað vegna tilmæla Svandísar Svavarsdóttur þáverandi innviðaráðherra

Óskar Bergsson

oskar@mbl.is

Isavia undirrbýr nú umsókn til Samgöngustofu um færslu girðingar við Reykjavíkurflugvöll vegna fyrirhugaðrar íbúðabyggðar í Skerjafirði. Þessi vinna var sett af stað vegna tilmæla Svandísar Svavarsdóttur þáverandi innviðaráðherra.

Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri Isavia innanlandsflugvalla, segir að umsóknin sé í vinnslu og verið sé að safna gögnum sem málinu tilheyra. Það sé síðan Samgöngustofu að leggja mat á og kalla eftir frekari gögnum sé þess talin þörf.

Nærri 1.600 skrifað undir

Arnór Valdimarsson hefur sett undirskriftalista á Island.is um áskorun til innviðaráðherra um að afturkalla tilmæli Svandísar til Isavia um að færa girðingu Reykjavíkurflugvallar svo að Reykjavíkurborg geti fengið flugvallarland í Skerjafirði til húsbygginga.

Í áskoruninni kemur fram að þau tilmæli stangist á við lög um loftferðir og einnig er skorað á ráðherrann að ganga í það að grisja ofvaxin tré í Öskjuhlíð sem standa upp í hindranaflöt fyrir aðflug og brottflug, og einnig brjóti sömu lög. Það sé skylda innviðaráherra að tryggja að flugöryggi og flugrekstraröryggi skerðist hvergi á meðan flugvöllurinn sé þar sem hann er.

Í gær höfðu 1.584 skrifað undir áskorunina.

Ríkið seldi borginni landið

Fyrirhuguð byggð í Skerjafirði er í næsta nágrenni við flugvöllinn og hófst skipulag hverfisins eftir að ríkið seldi Reykjavíkurborg landið. Það var gert árið 2013 í fjármálaráðherratíð Katrínar Júlíusdóttur og þegar Dagur B. Eggertsson var formaður borgarráðs, í borgarstjóratíð Jóns Gnarr. Árið 2019 undirrituðu Sigurður Ingi, þá innviðaráðherra, og Dagur, þá borgarstjóri, samkomulag um að flugvöllurinn myndi ekki víkja á meðan verið væri að kanna aðra kosti.

Flugvöllurinn er ekkert að fara

Ekki náðist í Sigurð Inga við vinnslu fréttarinnar í gær, en hann hefur áður gefið það út að borgin fái ekki meira af landi Reykjavíkurflugvallar fyrr en nýr flugvöllur líti dagsins ljós.

Eftir að starfshópur um mögulegt flugvallarstæði í Hvassahrauni skilaði af sér í byrjun mánaðarins sagðist fjármálaráðherrann Sigurður Ingi ekki vera reiðubúinn að fjármagna uppbyggingu flugvallar í Hvassahrauni. Í júní 2023 sagði hann að Reykjavíkurflugvöllur væri ekki að fara neitt fyrr en menn hefðu fundið aðrar leiðir.

Sigurður Ingi stendur nú frammi fyrir tveimur áskorunum: að framfylgja tilmælum Svandísar eða verða við áskorun flugvallarvina um að afturkalla beiðnina.

Höf.: Óskar Bergsson