Hjörtur J. Guðmundsson
Hjörtur J. Guðmundsson
Könnun Maskínu varpar mun betra ljósi á það hvern kjósendur telja í raun bezta kostinn.

Hjörtur J. Guðmundsson

Fyrir helgi voru birtar niðurstöður skoðanakönnunar Prósents í samstarfi við hlaðvarpið Bakherbergið, þar sem spurt var hvern fólk vildi sjá sem formann Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi alþingiskosningar. Könnunin náði þó ekki einungis til stuðningsmanna flokksins heldur fólks almennt, í flestum tilfellum einstaklinga sem væntanlega eru pólitískir andstæðingar hans.

Fyrir vikið er viðbúið að margir hafi nefnt þann einstakling sem ólíklegastur væri að þeirra mati, af þeim sem nefndir voru til sögunnar, til þess að leiða Sjálfstæðisflokkinn til sigurs í komandi kosningum. Ekki sízt þar sem spurt var hvern þeir vildu sjá sem formann flokksins í aðdraganda þeirra sem fyrr segir en ekki hvern þeir teldu hæfastan í þeim efnum eða bezta kostinn með hagsmuni hans í huga.

Vilji pólitískra andstæðinga

Miðað við niðurstöður skoðanakönnunar Prósents vildu flestir sjá Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, utanríkisráðherra og varaformann Sjálfstæðisflokksins, fara fyrir honum í kosningabaráttunni eða 21%, næstflestir Guðlaug Þór Þórðarson umhverfisráðherra (13%) og þá Bjarna Benediktsson forsætisráðherra og formann flokksins og Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur háskólaráðherra (11%).

Tvö neðstu sætin skipuðu Jón Gunnarsson, alþingismaður
og fyrrverandi dóms-
málaráðherra (8,9%) og Guðrún Hafsteinsdóttir núverandi ráðherra dómsmála (7,4%). Könnunin varpar eðli málsins samkvæmt fyrst og fremst ljósi á það hvern pólitískir andstæðingar Sjálfstæðisflokksins vildu að leiddi hann en segir lítið um hvern stuðningsmenn flokksins vildu sjá í því hlutverki.

Þveröfugar niðurstöður

Fróðlegt er að bera niðurstöður könnunarinnar saman við niðurstöður annarrar könnunar sem Maskína gerði í september þar sem spurt var hvaða ráðherra hefði staðið sig bezt í embætti á kjörtímabilinu. Niðurstöðurnar voru í raun þveröfugar. Þar var Guðrún efst af ráðherrum Sjálfstæðisflokksins, Áslaug Arna í öðru sæti, þá Jón Gunnars, Bjarni, Þórdís og loks Guðlaugur Þór.

Fólk almennt hefur eðli málsins samkvæmt hag að því að þeir sem gegni ráðherradómi hverju sinni taki sem skynsamlegastar ákvarðanir. Þar spilar flokkapólitík miklu minna inn í, og jafnvel lítið sem ekkert, en þegar spurt er um forystumenn einstakra stjórnmálaflokka. Fyrir vikið varpar könnun Maskínu mun betra ljósi á það hvern kjósendur telja í raun bezta kostinn í þeim efnum.

Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur.

Höf.: Hjörtur J. Guðmundsson