Viðreisn neitar að gangast við ábyrgð sinni á lóðaskorti í Reykjavík og þar með á hárri verðbólgu og háum vöxtum. Pawel Bartoszek, varaborgarfulltrúi og frambjóðandi Viðreisnar, reyndi að rugla umræðuna með því að segja Bjarna Benediktsson formann Sjálfstæðisflokksins hafa ruglast á sveitarfélögum þegar hann benti á að Reykjavík vildi ekki víkka út vaxtarmörk höfuðborgarsvæðisins.
Björn Bjarnason víkur að þessu á vef sínum og vísar í skrif Hildar Björnsdóttur, oddvita sjálfstæðismanna í Reykjavík, þar sem Hildur bendir á að Kópavogur hafi viljað víkka út vaxtarmörk svæðisins til að byggja upp á óbyggðu landi. Þá hafi Dóra Björt Guðjónsdóttir, pírati og formaður umhverfis- og skipulagsráðs borgarinnar, andmælt þeim áformum.
Ennfremur hafi Samfylkingin farið gegn tillögu sjálfstæðismanna í borginni um tilfærslu vaxtarmarka til að fjölga lóðum í borginni og Viðreisn ásamt framsóknarmönnum og pírötum hafi stutt Samfylkinguna í þessu.
Þá segir Björn: „Bjarni nefndi lóðaskortinn þegar rætt var um lækkun verðbólgu og vaxta. Lóðaskorturinn á höfuðborgarsvæðinu væri meðal stærstu verðbólguvalda. Meirihlutaflokkarnir í Reykjavík segjast vera á móti verðbólgu en ýta undir hana með skortstefnunni í lóðamálum. Pawel ætti að átta sig á að það er auðveldara að hverfa frá henni en að taka upp evru.“