Snorri Björnsson fæddist 7. september 1944. Hann lést 24. október 2024.

Útför fór fram 1. nóvember 2024.

Afi Snorri hefur kvatt þessa jarðvist.

Afi Snorri var hörkutól og á sama tíma ljúfur og mjúkur, harðduglegur með hlýtt hjarta og sinn einstaka hlátur. Hann var alla tíð áhugasamur um það sem við krakkarnir tókum okkur fyrir hendur. Það var gaman að spjalla við hann um hin ýmsu málefni og um daginn og veginn. Hann kom alltaf fram við okkur af virðingu og væntumþykju og engu máli skipti hvort við værum blóðskyld honum eða ekki, hann kom eins fram við okkur öll. Hann var mikill húmoristi og hélt í húmorinn fram á síðasta dag. Við sjáum hann fyrir okkur í sumarlandinu heilan heilsu með glettnisbros og stríðnisglampa í augum.

Ég á eina minning, sem mér er kær:

Í morgundýrð vafinn okkar bær

og á stéttinni stendur hann hljóður,

hann horfir til austurs þar ársól rís,

nú er mín sveit eins og Paradís.

Ó, hvað þú, Guð, ert góður.

Ég á þessa minning, hún er mér kær.

Og ennþá er vor og þekjan grær

og ilmar á leiðinu lága.

Ég veit að hjá honum er blítt og bjart

og bærinn hans færður í vorsins skart

í eilífðar himninum bláa.

(Oddný Kristjánsdóttir)

Við minnumst þín með hlýju og þökkum þér fyrir samfylgdina. Góða ferð, elsku afi.

Krakkarnir á Kálfafelli,

Hafdís Gígja, Ágústa Margrét, Íris Hanna, Amalía Rut, Símon Snorri og Daníel Smári.

Við erum á Kálfafelli í Fljótshverfi fyrir nærri 70 árum og við Snorri bróðir, yngstu bræðurnir í sjö systkina hópi, vorum mikið saman og það var margt baukað. Við lékum okkur með leggi og skeljar, kjálka og völur, en ekkert með það sem börn leika sér með í dag. Við smíðuðum kassabíla sem kannski voru ekki svo snotrir, en þeir voru góðir í vegavinnu. Þegar ég var ellefu eða tólf ára gaf Snorri mér í jólagjöf upptrekkta litla jarðýtu. Mamma og Snorri höfðu staðið fyrir þessari gjöf og spurðu mig síðar hvort mér þætti þetta of barnalegt. Ég hélt nú ekki. Ég hafði aldrei fyrr séð svona nútímalegt leikfang og mér fannst sem Snorri hefði gefið mér mikið stærri jólagjöf en ég honum.

Við áttum báðir köflóttar stuttbuxur og jakka, allt í sama lit. Ég reikna með að við höfum verið í þessum fötum í fyrsta lagi um helgar og okkur fannst við vera fínir í þeim. Í þá daga var enginn hringvegur og vegurinn frá Reykjavík endaði á Kálfafelli, holóttur vegur og hlykkjóttur. Víða stóðu steinar upp úr veginum sem skóku bíla og köstuðu þeim til. Samt kom ferðafólk æði oft, stoppaði á Kálfafelli og gekk þar um og skoðaði meðal annars kirkjuna. Í minningunni lifir að þetta ferðafólk hafði verið með æði mikið af sælgæti. Við lærðum snemma að vera úti við þegar þetta fólk kom, reyndum að svara spurningum og fengum oft drjúgan skammt af sælgæti.

Þetta er heimurinn sem Snorri fæddist inn í. Yngra fólk getur varla gert sér grein fyrir hvernig sá heimur leit út. Mannfólkið og dýrin líta svipað út og þá, einnig jörðin, vötnin og himinninn. Það mesta annað hefur breyst. Snorri fæddist 1944. Árið 1972 var hann orðinn kúabóndi á Kálfafelli. Hann byggði myndarlegt íbúðarhús, fjós og hlöðu sem hann tæknivæddi vel í samræmi við það sem þá þekktist. Ný tún ræktaði hann í talsverðum mæli ásamt Stefáni bróður okkar. Hann fékk viðurkenningar fyrir góða mjólk. Hann skilaði góðu dagsverki. Í árslok 2006 hætti hann kúabúskap og flutti á Seljaland í Fljótshverfi ásamt konu sinni Ragnheiði Runólfsdóttur. Á Seljalandi höfðu búið um árabil fjögur móðursystkini okkar, en mamma okkar og 13 systkini hennar fæddust þar og ólust upp.

Snorri var mikið á Seljalandi fram til tíu eða tólf ára aldurs og varð svolítið eins og barn þeirra systkinanna sem bjuggu þar. Ein áramót dvöldum við Snorri hjá þeim. Við vorum þá kannski tíu og tólf ára og vorum þar í nokkra daga. Þótt ég væri ungur var mér augljóst hversu mikinn kærleika Seljalandssystkinin báru til hans. Að lokum eignaðist hann Seljaland og þar bjuggu þau hjónin þar til fyrir nokkrum vikum.

Einhvern veginn varð það svo þegar kom að fullorðinsárunum að vegir okkar bræðra lágu of lítið saman. Ég get saknað þess en þar verður ekki úr bætt. Nú er hann kominn þrepi á undan mér og kannar þær víddir sem eru okkur huldar í tilverunni. Ég kalla það oft að vera kominn heim. Allar góðar óskir fylgja þér elsku bróðir og ef til vill komum við til með að finna nálægð hvor annars á öðru tilverustigi. Vegni þér vel Snorri bróðir minn frá Kálfafelli.

Guðjón Björnsson.