Óskar Bergsson
oskar@mbl.is
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum sl. föstudag tillögu matvælaráðherra um skipun starfshóps til að fara yfir tjón bænda vegna óvanalegs veðurfars fyrr á árinu og gera tillögur um útfærslu og umfang stuðningsaðgerða.
Viðbragðshópur tók til starfa í júní og hefur skráð umfang tjóns bænda umfram það sem núverandi kerfi gera ráð fyrir að styðja við. Alls var skráð tjón á 375 búum, flestum á Norðurlandi. Er þar um að ræða tjón á búfénaði og uppskeru, afurðatap og kostnað við endursáningu.
Meginverkefni starfshópsins verður yfirferð á skráningum viðbragðshópsins. Þá mun starfshópurinn einnig skoða stöðu garðyrkjubænda vegna hækkunar orkukostnaðar. Áætlanir gera ráð fyrir að um 40 milljónir króna vanti upp á svo fjárheimildir til niðurgreiðslu flutnings og dreifingar raforku til garðyrkjubænda nái 95% niðurgreiðsluhlutfalli sem miðað er við í samningi ríkisins og Bændasamtakanna um starfsskilyrði framleiðenda garðyrkjuafurða.
Kaltjón fellur undir hlutverk bjargráðasjóðs en alls bárust 123 umsóknir um stuðning af svæðinu frá Strandabyggð til Múlaþings.
Gert er ráð fyrir að um 300 milljónum króna verði varið til stuðnings vegna tjónsins.