Það var mikil gleði og kátína hjá þátttakendum Allir með leikanna enda mikið að sjá og prófa.
Það var mikil gleði og kátína hjá þátttakendum Allir með leikanna enda mikið að sjá og prófa.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Gleðin endurspeglaðist í andlitum rúmlega 100 barna með fötlun á grunnskólaaldri sem þátt tóku í Allir með leikunum á laugardag. Leikarnir tókust ótrúlega vel enda tilganginum náð; að þátttakendur njóti þess að taka þátt í viðburðinum og hlakki til að taka þátt í þeim næsta

Gleðin endurspeglaðist í andlitum rúmlega 100 barna með fötlun á grunnskólaaldri sem þátt tóku í Allir með leikunum á laugardag. Leikarnir tókust ótrúlega vel enda tilganginum náð; að þátttakendur njóti þess að taka þátt í viðburðinum og hlakki til að taka þátt í þeim næsta.

Á Allir með leikunum fengu allir þátttakendur tækifæri til að prófa fimm íþróttagreinar. Í boði voru fimleikar, frjálsar íþróttir, knattspyrna, körfubolti og handbolti en sérsambönd hverrar greinar sjá um framkvæmdina. Fyrstu fjórar greinarnar fóru fram í Höllinni og frjálsíþróttahöllinni og þar héldu Íþróttaálfurinn, Solla stirða og Halla úr Latabæ uppi góðri stemningu.

Allir með er verkefni íþróttahreyfingarinnar sem hefur að markmiði að fjölga tækifærum fyrir fötluð börn í íþróttum um allt land. Árið 2023 styrktu mennta- og barnamálaráðuneytið, félags- og vinnumarkaðsráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið verkefnið til þriggja ára. Íþróttasamband fatlaðra er ábyrgðaraðili verkefnisins sem er unnið í samstarfi við Íþrótta- og ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélag Íslands (UMFÍ). Unnið hefur verið að verkefninu í samstarfi við íþróttafélög og sveitarfélög um allt land. Áhersla er lögð á að hefðbundin íþróttafélög opni sínar dyr og bjóði upp á þjálfun fyrir börn með fatlanir eins og ófötluð börn.

Markmið leikanna er svo að gera verkefnið Allir með sýnilegt í samfélaginu og kynna iðkendum með fatlanir fimm íþróttagreinar. Markhópurinn er grunnskólabörn (6-16 ára) á öllu landinu. Leikarnir eru hluti af þremur verkefnum sem verða reglulega yfir árið fyrir börn með fatlanir en það eru Íslandsleikar í mars, Unglingalandsmót UMFí í ágúst og svo Allir með leikarnir í nóvember. Það geta því öll börn hlakkað til að taka þátt í þeim allt árið.