Egg Kælirinn í Hagkaupum við Eiðistorg á Seltjarnarnesi, sem geymir öllu jafna nokkrar tegundir af eggjum, var tómur síðdegis í gær.
Egg Kælirinn í Hagkaupum við Eiðistorg á Seltjarnarnesi, sem geymir öllu jafna nokkrar tegundir af eggjum, var tómur síðdegis í gær. — Morgunblaðið/hdm
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Neytendur hafa orðið varir við minna úrval af eggjum í verslunum að undanförnu. Margir hafa lýst yfir áhyggjum af stöðu mála, sér í lagi í kjölfar brunans hjá Nesbúi um síðustu helgi þar sem sex þúsund hænsnfuglar drápust

Höskuldur Daði Magnússon

hdm@mbl.is

Neytendur hafa orðið varir við minna úrval af eggjum í verslunum að undanförnu. Margir hafa lýst yfir áhyggjum af stöðu mála, sér í lagi í kjölfar brunans hjá Nesbúi um síðustu helgi þar sem sex þúsund hænsnfuglar drápust. Forsvarsmenn stærstu matvöruverslana segja þó að óþarfi sé fyrir neytendur að hafa áhyggjur af ástandinu nú þegar margir eru farnir að huga að jólabakstrinum.

„Krónan hefur fundið fyrir eggjaskorti síðustu mánuði en verslanir okkar hafa lent í því að pantanir séu ekki afgreiddar að fullu frá eggjabændum,“ segir Guðrún Aðalsteinsdóttir framkvæmdastjóri Krónunnar.

Hún segir að líkt og komið hafi fram í fjölmiðlum sé ein ástæða þessa eggjaskorts aukin eftirspurn en einnig hafi það eflaust haft sín áhrif að reglugerð um búreldi hænsna hefur nú tekið gildi að fullu með tilheyrandi áhrifum á framleiðslugetu. „Við í Krónunni tókum þá ákvörðun árið 2017 að hætta sölu á búrhænueggjum og höfum í raun ekki fundið fyrir miklum skorti áður. En núna virðist vera meiri þrýstingur á framboð til okkar og innlend framleiðsla nær ekki að anna eftirspurn að fullu. Þarna bætir eldsvoðinn hjá Nesbúeggjum ekki stöðuna.

Okkur finnst líklegt að þessi skortur verði viðvarandi, allavega eitthvað fram á næsta ár. Til að bregðast við höfum við lagt það til að tollar verði lækkaðir eða felldir niður tímabundið af innflutningi eggja. Það mál virðist ekki ná neinni framvindu, sem er miður,“ segir framkvæmdastjórinn.

Þrátt fyrir pattstöðu í tollamálum segir Guðrún að Krónan hafi brugðist við með því að tryggja sér innflutt egg til viðbótar við innlent framboð. „Við verðum að vera viss um að viðskiptavinir okkar fái eggin sín, sérstaklega núna þegar aðventan gengur í garð.“

Undir þetta tekur Gunnur Líf Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri verslunar‑ og mannauðssviðs hjá Samkaupum, sem reka verslanir Nettó. „Enginn þarf að hafa áhyggjur af jólabakstrinum, það er til nóg af eggjum og bruninn hefur ekki áhrif fyrr en eftir áramót. Við erum auðvitað á fullu að bregðast við því með birgjum bæði hér á landi og erlendis.“

Björgvin Víkingsson framkvæmdastjóri Bónuss segir að ekki sjáist á gögnum verslunarinnar að fólk hafi tekið að hamstra egg í kjölfar brunans um liðna helgi. Hann segir að það sé enda óþarft, jafnvel þótt fólk ætli sér að vera stórtækt í jólabakstrinum.

„Við einbeitum okkur að því að stöðugt flæði af eggjum sé til staðar í okkar búðum. Fram til þessa hefur gengið vel að halda í við eftirspurnina og aðeins hafa komið upp einstaka tilfelli þar sem ekki hefur náðst að anna eftirspurn.

Við fengum þær upplýsingar í síðustu viku hjá okkar framleiðendum að þeir sæju fyrir endann á því takmarkaða framboði sem við höfum verið að upplifa undanfarið. Þeir reiknuðu með því að það tæki svona tvær vikur enn þar til þetta yrði komið í betra horf. Svo kemur upp bruni hjá einum birgi en sá segir okkur að einhverra áhrifa muni gæta en ekki stórvægilegra þar sem þetta voru ekki allt varphænur. Tímabilið sem eggin kæmu frá þeim myndi ekki endilega stangast á við hátíðarnar.“