Flugvallaást Oliver og Hadley, ólík en skotin.
Flugvallaást Oliver og Hadley, ólík en skotin.
Æ, það getur verið svo ágætt stundum þegar þreyta er mikil og sálin kallar á hvíld yfir einhverju léttmeti á skjánum, að skrolla á Netflix undir flokknum rómantískar myndir. Einmitt á slíku kvöldi fyrir skemmstu fann ég þar prýðilega ræmu sem heitir …

Kristín Heiða Kristinsdóttir

Æ, það getur verið svo ágætt stundum þegar þreyta er mikil og sálin kallar á hvíld yfir einhverju léttmeti á skjánum, að skrolla á Netflix undir flokknum rómantískar myndir. Einmitt á slíku kvöldi fyrir skemmstu fann ég þar prýðilega ræmu sem heitir einfaldlega Ást við fyrstu sýn (Love at first sight). Þetta er nýleg kvikmynd, gerð í fyrra og byggist á skáldsögunni The Statistical Probability of Love at First Sight, eftir Jennifer Elizabeth Smith. Í kvikmyndinni segir af ungu fólki, hinni bandarísku Hadley og hinum breska Oliver, sem hittast fyrir tilviljun á flugvelli við borð þar sem fólki stendur til boða að hlaða síma sína. Til að skemma ekki fyrir þeim sem eftir eiga að sjá myndina er óhætt að segja að atburðarás fari þá af stað sem fer í ýmsar ólíkar áttir. Þau tvö eru ólík og þurfa bæði að takast á við erfiðleika í fjölskyldum sínum. Sally Phillips, sem við könnumst við úr Smack The Pony, er frábær í hlutverki móður Olivers, en hún og hennar maður fara óvenjulegar leiðir í lífinu. Þetta er hin dægilegasta ræma til að njóta hvíldar við, leikur er góður og skemmtilegar pælingar, til dæmis tölfræðin sem Oliver er með á takteinum og tengist nánast öllu því sem ber á góma. Skemmtileg sögukona poppar líka upp á ólíklegustu stöðum.

Höf.: Kristín Heiða Kristinsdóttir