Norður ♠ K8 ♥ KD96 ♦ K976532 ♣ - Vestur ♠ 10754 ♥ 5 ♦ 108 ♣ ÁD10432 Austur ♠ D63 ♥ G10742 ♦ D4 ♣ K95 Suður ♠ ÁG92 ♥ Á82 ♦ ÁG ♣ G876 Suður spilar…

Norður

♠ K8

♥ KD96

♦ K976532

♣ -

Vestur

♠ 10754

♥ 5

♦ 108

♣ ÁD10432

Austur

♠ D63

♥ G10742

♦ D4

♣ K95

Suður

♠ ÁG92

♥ Á82

♦ ÁG

♣ G876

Suður spilar 3 grönd

Það er ekki skemmtilegt að spila 3 grönd og horfa á andstæðingana taka fyrstu sex slagina þegar slemma stendur á borðinu. Þetta kom þó fyrir í nokkrum leikjum í Reisingersveitakeppninni á haustleikunum í Las Vegas sem lauk um helgina.

Í eitt skipti spilaði suður 3 grönd eftir að hafa opnað á eðlilegu laufi þótt AV segðu og styddu lauf. Vörnin tók fyrstu sex slagina á lauf og spilið var því 2 niður.

Við eitt borð opnaði suður á sterku grandi. Þegar vestur passaði spurði norður um háliti með 2♣ og sagði síðan frá tíglinum sínum en passaði þegar suður sagði 3 gr. Aftur byrjaði vörnin á að taka fyrstu sex slagina á lauf.

Við annað borð byrjuðu sagnir eins en norður sagði 4♦ yfir 3 göndum, Suður stökk þá í 6♦ og fékk alla slagina þegar trompdrottningin kom önnur.