Stjarnan er komin í undanúrslit í bikarkeppni karla í handknattleik eftir æsispennandi leik við ÍR í Breiðholtinu sem lauk með 35:34-sigri Stjörnunnar. Stjarnan verður því eitt af fjórum liðum sem taka þátt í bikarúrslitahelginni á næsta ári. ÍR-ingar voru sterkari í fyrri hálfleik og fóru tveimur mörkum yfir til búningsklefa, 20:18.
ÍR var með forystuna mestallan seinni hálfleikinn en á síðustu fimm mínútunum komst Stjarnan yfir og hélt það út. Ísak Logi Einarsson átti mjög góðan leik fyrir Stjörnuna en hann skoraði níu mörk. Hjá ÍR fóru Baldur Fritz Bjarnason og Bernard Kristján Darkoh á kostum og skoruðu 11 mörk hvor.
Í dag mætast KA og Afturelding á Akureyri og Fram og Valur í Úlfarsárdalnum en tvö þeirra bætast við í undanúrslitahópinn. Leik ÍBV og FH sem átti að fara fram í Vestmannaeyjum var frestað um daginn vegna kærumáls.