Umboð Halla Tómasdóttir forseti Íslands veitti Kristrúnu Frostadóttur stjórnarmyndunarumboð 3. desember. Síðan þá hafa staðið yfir viðræður.
Umboð Halla Tómasdóttir forseti Íslands veitti Kristrúnu Frostadóttur stjórnarmyndunarumboð 3. desember. Síðan þá hafa staðið yfir viðræður. — Morgunblaðið/Eggert
Ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins verður mynduð öðrum hvorum megin við jól. Þótt stjórnarmyndunarviðræður gangi vel er ekki búið að ná lendingu í öllum málaflokkum. Þetta herma heimildir Morgunblaðsins

Hermann Nökkvi Gunnarsson

Geir Áslaugarson

Ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins verður mynduð öðrum hvorum megin við jól. Þótt stjórnarmyndunarviðræður gangi vel er ekki búið að ná lendingu í öllum málaflokkum.

Þetta herma heimildir Morgunblaðsins.

Erfiðlega hefur gengið að fá upplýsingar um stöðu viðræðnanna að undanförnu en þann 3. desember ákváðu flokkarnir að hefja stjórnarmyndunarviðræður.

Blaðið hafði samband við alla þingmenn fyrrnefndra flokka í gær, 36 talsins, en fátt var um svör varðandi gang viðræðnanna. Þeir sem svöruðu sögðu lítið annað en að viðræður gengju vel fyrir sig en vísuðu svo á formennina.

„Ég held að þetta sé svona allt samkvæmt áætlun. Það er svona það eina sem ég get sagt,“ segir Jón Gnarr þingmaður Viðreisnar í samtali við Morgunblaðið og vísar á formanninn, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur.

Af tíu þingmönnum Flokks fólksins náðist í fimm þeirra. Guðmundur Ingi Kristinsson, Jónína Björk Óskarsdóttir, Ragnar Þór Ingólfsson, Sigurður Helgi Pálmason og Sigurjón Þórðarson sögðu að stjórnarmyndunarviðræður gengju vel en að þau ætluðu ekki að tjá sig frekar um málið að svo stöddu.

Af 11 þingmönnum Viðreisnar svöruðu sex símanum og vísuðu þeir flestallir á formenn flokkanna fyrir nánari upplýsingar. Voru það þingmennirnir Pawel Bartoszek, Grímur Grímsson, Eiríkur Björn Björgvinsson, Sigmar Guðmundsson, Jón Gnarr og Ingvar Þóroddsson.

„Það er ekkert sem þetta er að stranda á í augnablikinu, að mér vitandi,“ segir Ingvar, spurður hvort það séu einhver óleyst mál sem gætu komið í veg fyrir stjórnarmyndun.

Verst gekk að ná í þingmenn Samfylkingarinnar en af 15 þingmönnum voru níu þingmenn sem létu ekki ná í sig.

Fimm þingmenn vísuðu á formanninn og þeirra á meðal var Sigmundur Ernir Rúnarsson, sem bar fyrir sig að hann væri ekki enn orðinn þingmaður. Allavega ekki þar til Þórður Snær Júlíusson hefði formlega afþakkað þingsæti sitt, sem hann hyggst gera þegar Alþingi verður sett að nýju.

Arna Lára Jónsdóttir þingmaður Samfylkingarinnar vísar á formanninn en segir þó að viðræður gangi vel. Guðmundur Árni Stefánsson varaformaður Samfylkingarinnar segir í samtali við Morgunblaðið að viðræður gangi vel.

„Staðan er bara mjög góð. Menn sitja við skriftir og móta sáttmálann,“ segir Guðmundur en vísar að öðru leyti á formanninn, Kristrúnu Frostadóttur.

Höf.: Hermann Nökkvi Gunnarsson