Dóra Ósk Halldórsdóttir
doraosk@mbl.is
„Við höfum í gegnum tíðina verið með alls konar uppboð af ýmsum toga, mest þó af myndlist og listmunum, en við höfum verið að færa okkur inn á önnur svið og prófa okkur áfram með aðra gripi, eins og borðbúnað, silfur, skartgripi og þess háttar. Núna ákváðum við að prófa í fyrsta skipti að bjóða upp á það sem kalla mætti minnisverða hluti eða „memorabilia“ sem eru mjög vinsæl uppboð erlendis,“ segir Jóhann Ágúst Hansen, uppboðshaldari hjá Gallerí Fold, en uppboðið sem er haldið á vefnum hófst síðasta mánudag og stendur fram á sunnudagskvöldið daginn fyrir Þorláksmessu.
Skemmtilegar myndir
Jóhann segir að ákveðið hafi verið að prófa svona uppboð þegar íslenskur safnari hafði samband við galleríið. „Allt á uppboðinu er úr einkasafni þess manns og þetta eru allt áritaðir gripir, myndir, treyjur og fleira, en hann er búinn að vera að safna mjög lengi og það er spennandi að sjá hvernig þetta gengur.“
Á uppboðinu er mikið af árituðum myndum af leikurum, tónlistarmönnum og íþróttafólki og má þar nefna m.a. Clint Eastwood, Sean Connery, Peter O'Toole, Sofiu Loren, Katharine Hepburn, Rock Hudson og marga fleiri. Þá eru margar myndir af tónlistarmönnunum Prince, John Lennon, Michael Jackson og fleirum og einnig er derhúfa árituð af Michael Jackson á uppboðinu.
„Hönd Guðs“ hjá Sothebys
Þá má sjá áritaðar íþróttatreyjur ekki minni kappa en Pele, Maradona og Messi og fylgir þeim skírteini því til staðfestingar. „Þetta eru ekki treyjur sem þeir hafa sjálfir spilað í, heldur hafa aðdáendur keypt bolinn og fengið eiginhandaráritanir á þá,“ segir Jóhann.
Í apríl 2022 seldist treyjan sem Maradona klæddist í leiknum fræga þar sem „hönd Guðs“ aðstoðaði við eitt markið, á rokverði í Sothebys í Lundúnum, á 9,3 milljónir dollara. Jóhann segir að það hafi verið algjört metverð á markaðinum, en sýni hversu vinsælar svona vörur séu erlendis.
Betra að sjá gripina á staðnum
Jóhann segir að hann mæli með að fólk sem hafi áhuga á uppboðinu skelli sér í galleríið. „Það er alltaf betra að sjá gripina sjálfur, en gripirnir eru seldir í því ástandi sem við fáum þá.“
Erlendis eru mörg uppboð sem tengjast dægurmenningu. „Vestanhafs er mikið verið að bjóða upp hluti af kvikmyndasettum og það eru oft mjög vinsæl uppboð. Það er spennandi að sjá hvernig Íslendingar taka þessari nýjung hjá okkur.“