Á Kirkjusandi Stutt er á milli Hallgerðargötu 11b vinstra megin og fjölbýlishússins Stuðlaborgar hægra megin.
Á Kirkjusandi Stutt er á milli Hallgerðargötu 11b vinstra megin og fjölbýlishússins Stuðlaborgar hægra megin. — Morgunblaðið/Baldur
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Baksvið Baldur Arnarson baldura@mbl.is

Baksvið

Baldur Arnarson

baldura@mbl.is

Víða er stutt á milli fjölbýlishúsa á nýjum þéttingarreitum í borginni.

Dæmi um þetta má sjá hér á síðunni en myndirnar voru teknar á Kirkjusandi og á Orkureitnum.

Tilefnið er umræða um nábýlið sem hlýst af þéttingu byggðar. Þá ekki síst í Suður-Mjódd en Morgunblaðið hefur að undanförnu fjallað um þá uppbyggingu. Til upprifjunar er mynd af henni birt hér fyrir neðan.

Meðal annars ræddi Morgunblaðið við Pál Jakob Líndal umhverfissálfræðing sem taldi að borgin hlyti „að vera komin í þrot með þessa þéttingarstefnu“.

Samtöl Morgunblaðsins við arkitekta leiða í ljós að þessi skipulagsstefna er umdeild innan stéttarinnar. Hins vegar vilja arkitektar ekki koma fram undir nafni af ótta við að það skerði starfsmöguleika þeirra.

Haft eins og búrhænsni

Einn þeirra ræddi við Morgunblaðið í trausti nafnleyndar.

„Mér finnst hræðilegt hvað það er verið að byggja nærri umferðaræðum. Þegar ég var í akademíunni var lagt mikið upp úr friðsæld, útsýni og sólarljósi en nú finnst mér fólk haft eins og búrhænsni,“ sagði arkitektinn um þéttingarreiti í Reykjavík.

Slæm áhrif á heilsu

„Það er ekki skrítið að fólk sé að upplifa kulnun og streitu ef híbýlin eru ekki lengur mannsæmandi, alltof lítil og dimm. Höfð er minnsta mögulega fjarlægð milli húsa þannig að fólk starir á milli glugga. Áður voru tveggja herbergja íbúðir jafnan 70 fermetrar. Nú er hins vegar orðið algengt að nýjar tveggja herbergja íbúðir séu 50 fermetrar.

Svalir eru líka oft hafðar svo litlar að það er varla hægt að nota þær. Fyrir utan að snúa orðið jafnvel í norður en áður var mikið lagt upp úr því að svalir sneru til suðurs eða vesturs en í neyð til austurs. Það hvarflaði ekki að nokkrum manni að setja svalir í norður. Nú eru fjölbýlishús skipulögð þannig að svalir geta aðeins verið í norður. Það er alvarlegt mál ef fólk fær ekki sólarljós inn í íbúðirnar,“ sagði arkitektinn. Fólk finni nú eflaust mikið fyrir þessu í svartasta skammdeginu en sólarljós og birta séu mikilvæg fyrir andlega heilsu.

Arkitektinn segir nauðsynlegt að þétta byggð í borginni, þ.m.t. vegna umferðarmála, en með þessari stefnu sé of langt gengið. Vel sé hægt að útfæra þéttingu á betri hátt.

Þétting í Suður-Mjódd

Hefur opnað á umræðu

Eitt helsta fréttamál síðustu vikna er hvernig staðið var að þéttingu byggðar við Álfabakka í Suður-Mjódd í Reykjavík. Hefur það vakið mikla umræðu um skipulagsmál í Reykjavík.

Fyrirtækið Álfabakki 2 ehf. reisti þar byggingu fyrir verslunarrisann Haga en bakhlið hennar snýr að fjölbýlishúsi sem Búseti reisti á næstu lóð. Myndin hér fyrir ofan sýnir hversu stutt er á milli húsanna en hún hefur vakið athygli.

Eins og dæmin hér fyrir ofan sýna er þetta skipulag í Suður-Mjódd fjarri því að vera einsdæmi í Reykjavík.

Í Morgunblaðinu í gær var rætt við lögfræðing húsbyggjendanna í Álfabakka 2 en hann sagði marga fulltrúa borgarinnar hafa komið að skipulaginu.

Höf.: Baldur Arnarson