Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Það ríkir mikil spenna fyrir nýjum þjálfara íslenska karlalandsliðsins í fótbolta. Norðmaðurinn Åge Hareide lét af störfum í lok nóvember og hafa margir þjálfarar verið orðaðir við starfið.
Nýr þjálfari hoppar beint út í djúpu laugina því fram undan eru umspilsleikir við Kósovó í mars og svo hefst undankeppni HM 2026 strax í september á næsta ári en undankeppnin verður öll leikin næsta haust.
Ég var ekki mjög gamall þegar lokakeppni HM fór fram í Bandaríkjunum árið 1994 en samt man ég mjög vel eftir mótinu, sem Brasilía vann í vítakeppni.
Lokakeppnin árið 2026 verði sú stærsta frá upphafi þar sem 48 þjóðir mæta til leiks en lokakeppnin fer fram í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada.
Íslenska landsliðið er mjög spennandi lið í dag. Liðið hefur verið í lægð undanfarin ár og á þeim tíma hafa margir ungir og efnilegir leikmenn fengið dýrmæt tækifæri á stærsta sviðinu. Þessir leikmenn eru lykilmenn í liðinu í dag.
Varnarleikurinn verður stærsti höfuðverkur nýs landsliðsþjálfara. Gullaldarliðið sem fór á tvö stórmót fékk varla á sig mark og það er lykillinn að velgengni íslenska landsliðsins. Åge Hareide tókst ekki að stoppa í götin í vörninni, enda gat hann sjaldan stillt upp sínum sterkustu varnarmönnum.
Þegar íslenska liðið náði sínum besta árangri var alltaf spilað á sömu varnarmönnunum, sama hvort þeir voru að spila reglulega með sínum félagsliðum eða ekki. Þá virtist aldurinn á þeim engu máli skipta. Það má alveg hafa þessa tvo hluti í huga.
Ef nýjum landsliðsþjálfara tekst að stoppa í götin og byggja upp góðan og stöðugan varnarleik er ekkert því til fyrirstöðu að karlalandsliðið fari alla leið í lokakeppni HM árið 2026.